Innlent

Banaslys við Krossanesbraut

Karlmaður á fertugsaldri beið bana þegar stór grjótflutningabíll sem hann ók fór fram af háum vegkanti við Krossanesbraut og valt þegar hann hafnaði ofan í fjöru. Þetta var svonefnd búkolla og vann ökumaðurinn að því að breikka veginn. Ekki liggur enn fyrir hvað olli því að bíllinn fór fram af kantinum. Myndin er úr myndasafni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×