Innlent

Hlaup í Jökulsá á Dal

Hlaup kom í Jökulsá á Dal síðdegis í gær og um klukkan hálf sjö var brúnni við Fremri- Kárahnjúk lokað, enda var vatnsyfirborðið þá alveg að ná upp í brúargólfið og farið var að skola úr fyllingum við brúarendana. Flóðið hefur sjatnað verulega í nótt en um tíma í gærkvöldi myndaðist stórt lón við bráðabirgðastíflu við hjárennslisgöngin, fyrir ofan sjálft stíflustæðið, þar sem menn eru að vinnu. Sá garður var styrktur verulega um helgina þegar hlaup varð þá í Jöklu. Svo virðist sem ummál hjáveituganganna sé of lítið til að anna vatnsrennslinu í flóðum, eins og fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær, eða þá að einhverskonar stífla sé í göngunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×