Mótmæla leðurfatnaði í Gay Pride 4. ágúst 2004 00:01
Íslenskur dýravinur, hommi, lesbía og Búkolla mótmæltu því á Austurvelli í dag að samkynhneigðir íklæddust leðri. Þau segja að á bak við hverja leðurskó, svipu eða leðurjakka liggi ólýsanleg þjáning dýra og að föt úr gervileðri eða gúmmíi séu jafn kynþokkafull og leðrið. Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni að Hinsegin dagar verða í Reykjavík um næstu helgi. Þá fara hommar og lesbíur um götur og torg í sínu fínasta pússi og mörg þeirra eru mikið fyrir leðrið. Dýravinir eru ekki alveg sáttir við það, þó svo þeir styðji réttindabaráttu samkynhneigðra. Einn þeirra, Magnús Skarphéðinsson, segir áherslu „Gay Pride“ göngunnar á Hinsegin dögum verða sífellt leðurlegri og það hryggi dýravini. Hann segist viss um að það góðhjartaða fólk sem taki þátt í göngunni hafi ekki leitt hugann að því að að baki þessum flíkum liggi mikil þjáning. Aðspurður um aðra hópa sem gangi mikið í leðri, t.a.m. lögregluna, segir Magnús að vissulega þyrfti að taka það í gegn en einhvers staðar verði að byrja. Hann segir leðurnotkun óþarfa, dýra og endingarlitla og til séu gerviefni sem séu flottari, kynþokkafyllri og á allan hátt mannúðlegri. Spurður hvort leðurvörurnar séu ekki komnar af dýrum sem hvort eð er sé slátrað vegna kjötafurðanna segir Magnús þetta hanga á sömu spýtunni. Kjötiðnaður einn og sér gæti aldrei staðið án þess að leðrið væri notað. Ef leðuriðnaðurinn félli niður félli kjötiðnaðurinn niður sömuleiðis. Magnús segir niðurstöðuna vera þá að í hvert skipti sem maður kaupi leðurskó, leðurjakka eða leðurbuxur styðji maður þessa þjáningu.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira