Ónákvæm kort Landmælinga Íslands 4. ágúst 2004 00:01
Dæmi eru um að ár renni upp í mót og heilu og hálfu fjöllin vanti á landakort af Íslandi frá Landmælingum Íslands. Forstjóri stofnunarinnar kennir fjárskorti um. Arnar Sigurðsson hjá Loftmyndum ehf., sem gefið hafa út nákvæm kort sem unnin eru úr myndum teknum úr lofti, segir að nokkurt misræmi hafi komið í ljós þegar nýju kortin voru borin saman við stafræn kort Landmælinga. Hægt sé að finna skekkjur upp á nokkur hundruð metra og dæmi séu um að heilu og hálfu fjöllin vanti á kortin. Hann segir þetta stafa af því að gögnin sem Landmælingar notist við í kortagerð sinni séu gömul og ónákvæm. Arnar segir þau kort annars vegar byggð á gögnum frá tímum kortagerðar Dana hér á landi og hins vegar á gögnum frá bandaríska hernum. Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga, segir að í sumum tilvikum sé um mannleg mistök að ræða. Starfsfólk Landmælinga taki því fagnandi þegar bent sé á villur í kortum til að hægt sé að laga þær. Hins vegar noti Loftmyndir mörg dæmi þar sem verið sé að bera saman ólíka hluti. Sumt sem sé vissulega rétt, t.a.m. að notast sé við gömul kort, en í öðrum tilvikum sé verið að bera saman mjög ólíka mælikvarða sem eru ekki samanburðarhæfir. Einfalt ferðakort sé t.d. ekki það sama og nákvæmt grunnkort og því beri að varast að bera þau saman. Magnús segir að fjárskortur sé aðal ástæða þess að ekki hafi öll gögn verið endurnýjuð og einnig að kortagerð sé kostnaðarsöm grein. Alltaf sé verið að endurnýja gögn og nefnir hann til að mynda verkefni sem hófst í dag þar sem hnitakerfi landsins, eða svokallað grunnstöðvanet, verður mælt upp á nýtt.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira