Innlent

Bjargað úr brennandi tjaldi

Vörður á tjaldstæðinu í Laugardal í Reykjavík bjargaði í nótt tveimur mönnum út úr brennandi tjaldi og sakaði þá ekki. Þeir höfðu sofnað út frá logandi kerti sem líklega hefur oltið um. Tjaldbúarnir eru svonefndir góðkunningjar lögreglunnar og voru ekki aufúsugestir á tjaldstæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×