Þunguð kona dæmd í 5 ára fangelsi 23. júlí 2004 00:01
Barnshafandi vændiskona frá Síerra Leóne var dæmd í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Konan, sem hélt fram sakleysi sínu fyrir dómi, var tekin í Leifsstöð með um 5 þúsund e-töflur í bakpoka. Sakborningurinn, hin 25 ára gamla Fanta Sillah, var ekki viðstödd dómsuppkvaðningu í dag. Hún var flutt á spítala í nótt vegna veikinda sem tengjast meðgöngunni og verður að öllum líkindum haldið þar fram að fæðingu, sem er áætluð í október. Efnin fundust í farangri hennar við komu til Keflavíkur 10. júní. Hún flaug hingað frá Frakklandi en hefur flóttamannavegabréf, útgefið í Hollandi, sem rennur út á næsta ári. Sillah segist ekki hafa vitað af efnunum sem hafði verið komið fyrir í fóðrinu í pakpokanum; hún hafi fengið hann að láni hjá vinkonu sinni með þeim fyrirmælum að koma honum í hendur aðila hér á landi. Þær útskýringar voru ekki teknar trúanlegar og taldi dómurinn það hafið yfir allan skynsamlegan vafa að hún vissi af efnunum í pokanum. Hún hafi verið notuð sem burðardýr en ekki sé unnt að líta framhjá eðli og alvarleika brots hennar. Verjandi Sillah krafðist sýknu enda hafi konan búið við hörmungar frá barnæsku og leiðst ung út í vændi. Hún segist hafa stundað vændi víða um Evrópu á undanförnum árum og að ferðin til Íslands hafi verið farin í þeim tilgangi að selja sig íslenskum manni sem hún kynntist nýverið í París. Hún segir að sama kona og hafi lánað sér bakpokann hafi haft milligöngu þeirra viðskipta. Sillah á ungt barn sem er í umsjá ættingja sinna í Sierra Leona og fimm ára barn sem í kjölfar þessa máls var komið fyrir í umsjá hollenskra barnaverndaryfirvalda. Eins og fyrr segir á hún nú von á því þriðja. Verjandi Sillah, Guðmundur B. Ólafsson, telur dóminn strangan en að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort honum verði áfrýjað. Hann segir líklegt að hún afpláni refsingu sína í Kvennafangelsinu í Kópavogi en dæmi eru um að börn hafi dvalið þar hjá móður sinni, þótt ekki hafi verið um fimm ára tímabil að ræða. Guðmundur segir að til greina komi að farið verði fram á að Sillah taki refsingu sína út í Hollandi af mannúðarástæðum vegna hins fimm ára gamla barns sem hún á þar. Hennar staða sé hins vegar óljós því hún sé frá Síerra Leóne þrátt fyrir að vefabréf hennar sé gefið út í Hollandi. Myndin er tekin þegar Fanta Sillah var dæmd í gæsluvarðhald í síðasta mánuði.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira