Sport

Verðum að halda einbeitingunni

Undanúrslitin í Hópbílabikarnum í körfubolta fara fram í Laugardalshöll í kvöld. Í fyrri leiknum mætast Snæfell og Grindavík en í þeim síðari eigast við erkifjendurnir frægu í Njarðvík og Keflavík. Grindavík og Snæfell mættust í fyrstu umferð Intersportdeildarinnar í Grindavík. Þar höfðu Grindvíkingar betur, 90-80, en töluverður haustbragur var yfir þeim leik og hvorugt liðið í raun komið almennilega í gang á þeim tíma. Lið Grindvíkinga varð fyrir mikilli blóðtöku þegar Justin Miller varð frá að hverfa vegna veikinda í fjölskyldu sinni. Að auki hefur Helgi Jónas Guðfinnsson ekki gengið heill til skógar og því verður þjálfarinn Kristinn Friðriksson að finna leiðir til að fylla upp í þau skörð sem þessir snjöllu leikmenn skilja eftir sig. Snæfellsliðið er óðum að koma til eftir að hafa ollið sínu fólki vonbrigðum í byrjun keppninnar. Hinir erlendu leikmenn liðsins, Pierre Green og Desmond Peoples, virðast loks hafa fundið taktinn og þá eru Magni Hafsteinsson og Pálmi Freyr Sigurgeirsson að koma sterkari inn með hverjum leiknum. Liðið stöðvaði sigurgöngu Njarðvíkurliðsins í Intersportdeildinni og mætir því með sjálfstraustið í botni í leikinn gegn Grindavík í kvöld. Leikmenn Njarðvíkur og Keflavíkur hafa oft eldað grátt silfur saman og verður væntanlega engin breyting á því í kvöld. Keflvíkingar hafa harma að hefna síðan í Meisturum meistaranna þar sem Njarðvíkingar unnu auðveldlega, 105-79. Bæði lið hafa gengið í gegnum smávægilegar breytingar þannig að erfitt er að nota þann leik sem viðmið fyrir komandi átök í kvöld. Troy Wiley er haldinn á braut og í hans stað er kominn Anthony Lackey, sem með tímanum ætti að geta fest sig í sessi í hinu sterka liði Njarðvíkur. Keflvíkingar hafa látið tvo útlendinga fara það sem af er vetri. Jimmy Miggins og Mike Matthews eru báðir horfnir á braut en Nick Bradford, sem lék með Keflavík á síðasta tímabili með frábærum árangri, er kominn aftur og Keflvíkingar orðnir fullmannaðir og rúmlega það. Það má því búast við hörkuleik milli erkifjendana í Njarðvík og Keflavík. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, sagði tapið gegn Snæfelli í Ljónagryfjunni síðastliðinn mánudag vera visst víti til varnaðar fyrir sína menn. "Þar erum við ekki að leika nógu vel og verðum að koma betur stemmdir til leiks í kvöld," sagði Einar. "Keflvíkingar byggja leik sinn mikið á hraða og leika sterka pressu- og svæðisvörn. Við höfum titil að verja og ætlum að leggja allt í það að leggja þá að velli." Einar sagðist ekki hafa miklar áhyggjur af því álagi sem væri á Keflavíkurliðinu um þessar mundir. "Álagið er ekkert endilega ókostur fyrir Keflavík. Það er ekkert verra að spila reglulega og æfa bara þeim mun minna. Keflvíkinga eru búnir að vera með þetta fyrir framan sig síðan um mitt sumar og menn hafa hagað undirbúningnum í samræmi við það þannig að þeir mæta brjálaðir til leiks." Falur Harðarson, aðstoðarþjálfari Keflvíkinga, sagði liðið þurfa að taka sig saman í andlitinu ef miðað er við síðustu viðureign liðanna er liðin mættust í Meisturum meistarana. "Sá leikur var hörmulegur af okkar hálfu," sagði Falur. "Þriðji leikhluti fór 30-10, sem kostaði okkur í raun leikinn. Það er mikil törn á okkur þessa dagana og það er spurning hvernig við náum að halda einbeitingunni eftir Evrópuleikinn gegn Bakken Bears í gær." Falur viðurkenndi að mikið slen hefði einkennt leik Keflavíkur eftir síðasta Evrópuleik gegn portúgalska liðinu Madeira. "Við mættum KR í Vesturbænum tveimur dögum seinna og þar sást vart einbeiting á mínum mönnum. Við héldum að við gætum rúllað þeim upp en KR-ingar tóku það ekki í mál og unnu leikinn. Ég er þeirrar skoðunar að við séum með miklu betra lið en KR-ingar, eigum aldrei að tapa fyrir þeim og er það ekkert illa meint gagnvart KR." Að sögn Fals hefur Keflavík sjaldan búið yfir mikilli hæð en hraðinn hefur verið aðal liðsins. "Við viljum spila hraðan bolta og þess vegna virkaði t.d. ekki Mike Matthews með liðinu. Ég sá Njarðvík spila gegn Snæfelli á mánudaginn var og þar var liðið að spila ágætlega á köflum. Nýi útlendingurinn var að spila sinn fyrsta leik og á eftir að komast betur inn í spilið hjá þeim. Þeir eru samt örugglega búnir að segja honum að vera brjálaður gegn Keflavík enda er það Njarðvíkingum í blóð borið," sagði Falur Harðarson. Guðlaugur Eyjólfsson, leikmaður Grindavíkur, sagði brotthvarf Justins Miller vera mikinn missi fyrir sína menn. "Þetta er nátturlega hrikaleg tímasetning fyrir okkur og hann var farinn að finna sig betur og betur með hverjum leiknum," sagði Guðlaugur. "En þetta voru óviðráðanlegar aðstæður. Hann gat ekki verið áfram og ekkert við því að gera." Grindavík vann Snæfell í síðasta leik liðanna í fyrstu umferð Intersportdeildarinnar. "Snæfellsliðið var mjög sterkt í fyrra og er búið að styrkja sig enn frekar fyrir veturinn. Við berum fulla virðingu fyrir því og höfum í rauninni allt að sanna. Við erum búnir að spila illa í vetur og þurfum virkilega að þjappa okkur vel saman til að vinna Snæfell," sagði Guðlaugur. Torfi Freyr Alexandersson, oftast kallaður Torfi "bróðir" og einn litríkasti stuðningsmaður körfuboltans á Íslandi, sagði sína menn í Snæfelli vera á mikilli siglingu um þessar mundir. "Við vorum að vinna KFÍ með tæplega 50 stigum og svo unnum við sterkasta liðið í deildinni á útivelli á mánudaginn var," sagði Torfi, ánægður með gang mála. Hann fullyrðir að nýir menn hafi þurft aðlögunartíma og að ekki sé annað að sjá en leikmenn Snæfells séu farnir að vinna sem einn maður. "Menn eins og Magni, Pálmi Freyr og útlendingarnir tveir eru náttúrlega miklir hæfileikamenn og þurftu að fá sinn tíma til að finna sig með liðinu. Snæfell er núna orðið ágætlega smurt og miðað við leikinn gegn Njarðvík er það fært í flestan sjó. Það eru líka gleðitíðindi að Lýður Vignisson er búinn að ná sér nógu vel af meiðslunum til að geta heiðrað okkur með návist krafta sinna." Torfi, sem jafnan ber mikla virðingu fyrir andstæðingunum hverju sinni, sagði mikinn missi fyrir Grindvíkinga að Justin Miller hefði sagt skilið við liðið og íslensku deildina. "Hann var ofsalega góður leikmaður, sterkur og öflugur frákastari. Ég vonast til að sjá hann aftur á Íslandi og að Grindvíkingar nái að fylla skarð hans. Helgi Jónas, sem er stór partur af íslenskum körfubolta, er líka meiddur sem er mínus fyrir þá en plús fyrir okkur. Við erum fullir bjartsýni fyrir leikinn og vonumst eftir góðri skemmtun í leikjunum tveimur í kvöld," sagði stuðningsmaðurinn litríki. smari@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×