Presturinn á Kirkjustétt 28. nóvember 2004 00:01 "
Við vorum að kaupa okkur íbúð í Búseta og það vill bara svo skemmtilega til að hún stendur við Kirkjustétt," segir sr. Sigríður, þokkalega ánægð með að vera prestur á Kirkjustétt og fagnar því að auki að kirkjan í hverfinu mun að líkindum standa við götuna, aðeins steinsnar frá heimili hennar. Kirkjan er enn óbyggð en safnaðarstarf í Grafarholti fer fram í sal Félagsþjónustunnar í Reykjavík við Þórðarsveig. Skrefin frá heimili Sigríðar og yfir í kirkjuna verða fá þegar þar að kemur, sem býður óneitanlega upp á óvæntar uppákomur. "Ég kem til með að messa á sloppnum," segir hún og hlær. Næsta gata er svo Prestastígur og auðvitað renndi presturinn hýru auga til íbúða þar. "Vandamálið er hins vegar að þar eru aðallega Búmannablokkir og til þess að verða félagsmaður í Búmönnum þarf maður að vera orðinn fimmtugur að aldri." Sigríður á enn rúman áratug í fimmtugt en býst fastlega við að falast eftir íbúð við Prestastíginn þegar þeim virðulega aldri er náð. Hún lætur annars vel af störfunum í Grafarholtinu þó engin sé kirkjubyggingin og segir ákveðna kosti því samfara. "Maður kynnist svo mörgu fólki á að vera svona landsins sníkjudýr, þá þarf maður að hafa greiða af svo mörgum." Erindum og bónum Sigríðar er jafnan vel tekið og þessa daga stendur hún að skipulagningu fyrsta menningarkvöldsins í Grafarholti. Verður það 15. desember í salnum góða við Þórðarsveig og ætla rithöfundarnir Einar Már, Sigmundur Ernir og Þórarinn Eldjárn að lesa úr nýútkomnum bókum sínum. Ekki er að efa að íbúarnir fjölmenna og hlýða á skáldin. Sigríður lætur annars ágætlega af lífinu í hinu nýbyggða Grafarholti. "Hér er kominn nokkur hverfisbragur, fólk farið að heilsa og svona, þannig að hér er bara gaman."
Innlent Menning Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira