Sport

Kostelic sigraði í sviginu

Janica Kostelic sigraði í svigi heimsbikarkeppninnar á skíðum í Aspen í Colorado í gærkvöldi.  Þetta var sautjándi sigur króatísku stúlkunnar. Kostelic er 22 ára og vann fyrsta heimsbikarsigur sinn fyrir 4 árum. Anja Person frá Svíþjóð varð önnur og Tanja Poutianen frá Finnlandi þriðja.  Í fyrradag urðu þær í þremur fyrstu sætunum á stórsvigsmóti á sama stað, þá vann Poutianen, Person varð önnur og Kostelic þriðja.  Í Lauke Louise í Albertafylki í Kanada var keppt í bruni karla í heimsbikarkeppninni.  Bandaríkjamaðurinn Bode Miller sigraði, annar varð Antoine Deneriaz Frakklandi og Michael Walchover Austurríki varð í þriðja sæti.  Austurríkismaðurinn Hermann Maier varð sjötti og Norðmaðurinn Lasse Kjus tíundi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×