Slegist um Guðjón 18. nóvember 2004 00:01
Guðjón Þórðarson er enn staddur á Englandi þar sem hann freistar gæfunnar en á Suðurnesjum sitja menn sem vilja ólmir fá hann til starfa. Áður en Guðjón hélt utan náði hann samkomulagi um samning við Grindavík en frestaði undirskrift þar til útséð væri hvort hann fengi vinnu í Bretlandi. Í millitíðinni hafa Keflvíkingar sett sig í samband við Guðjón, sem að sögn formanns knattspyrnudeildar Keflavíkur, Rúnars Arnarssonar, hefur tekið ágætlega í þá hugmynd að ræða við þá ef hann fær ekki starf úti. Það eru nýjar fréttir fyrir Jónas Þórhallsson, formann knattspyrnudeildar Grindavíkur, sem hefur beðið rólegur og þolinmóður eftir Guðjóni síðustu vikur. "Við bíðum enn þolinmóðir eftir Guðjóni og munum halda því áfram," sagði Jónas en hann vildi ekkert tjá sig um áhuga Keflvíkinga á Guðjóni. Milan Stefán Jankovic, sem þjálfaði meistaraflokk Keflavíkur í fyrra, hefur tekið við þjálfun meistara- og 2. flokks Grindavíkur þar til niðurstaða fæst í Guðjónsmálið en Jankovic kom upphaflega til Grindavíkur til að aðstoða Guðjón og þjálfa 2. flokkinn. Aldrei stóð til að hann þjálfaði meistaraflokkinn. Rúnar Arnarsson vonaðist eftir því í síðustu viku að fá botn í þjálfaramálin í þessari viku en ný stjórn knattspyrnudeildar hefur ákveðið að setja Guðjón á topp óskalistans. "Það er engin launung á því að við ætlum að hinkra eftir Guðjóni. Hann er númer eitt hjá okkur," sagði Rúnar en ætlar hann þá í kaupstríð við Grindvíkinga? "Nei, við ætlum bara að fá Guðjón. Það er ekkert flóknara en það. Hann hefur gefið okkur undir fótinn með að ræða við okkur ef hann kemur heim og við viljum láta reyna á það hvort við getum fengið hann í vinnu." Keflvíkingar hafa rætt við aðra þjálfara um starfið en þeir munu ekki ræða frekar við þá þjálfara fyrr en útkljáð er hvort þeir geti fengið Guðjón. Það er því ljóst að Suðurnesjaliðin munu berjast um Guðjón ef hann kemur heim en óttast Rúnar það ekkert að Jónas kollegi hans fari í fýlu yfir þessu útspili? "Hann má fara í fýlu mín vegna. Ég hef engar áhyggjur af því. Ég trúi því ekki að menn séu svo óþroskaðir að fara í fýlu yfir því þótt það sé barist um menn. Það á enginn einkarétt á samningslausum mönnum og þetta er bara eins og þegar við sláumst um samningslausa leikmenn," sagði Rúnar Arnarsson.
Íslenski boltinn Mest lesið Sænska pressan tætir landsliðið í sig Fótbolti HM-maður dagsins: Vann í verksmiðju og lætur leiðindi þjálfarans ekki stöðva sig Fótbolti Gagnrýndur fyrir að ætla af HM til að vera viðstaddur fæðingu Fótbolti Slógu met Íslands og markvörðurinn jafnaði met á HM Fótbolti Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dagskráin í dag: Risa leikur í Bestu deildinni og úrslitin ráðast á U.S. Open Sport Má ekki spila en hjálpar til við met: „Frekar skrýtið að horfa á þessa leiki“ Íslenski boltinn Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Hefja viðræður um kaup á Tonali Enski boltinn Fleiri fréttir Úrhelli setti allt úr skorðum fyrir úrslitaleik í Berlín Slökktu á samfélagsmiðlum og treysta áfram á Ronaldo Má ekki spila en hjálpar til við met: „Frekar skrýtið að horfa á þessa leiki“ Tárin streymdu hjá mömmu Cunha Sænska pressan tætir landsliðið í sig HM-maður dagsins: Vann í verksmiðju og lætur leiðindi þjálfarans ekki stöðva sig Sigurinn blasir við Clark en Scheffler lætur sig dreyma Slógu met Íslands og markvörðurinn jafnaði met á HM Gagnrýndur fyrir að ætla af HM til að vera viðstaddur fæðingu Dagskráin í dag: Risa leikur í Bestu deildinni og úrslitin ráðast á U.S. Open Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Hefja viðræður um kaup á Tonali Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Spiluðu allan leikinn í tapi gegn Rosenborg Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Sjá meira