Innlent

Mun reyna á forsendur annarra

Sveitarstjórnarmenn segja að kostnaðarauki vegna nýrra samninga við kennara nemi hátt í þrjátíu prósent fyrir sveitarfélögin og formaður Starfsgreinasambandsins segir að þeir muni reyna á samningsforsendur allra á hinum almenna vinnumarkaði, frá A til Ö. Þannig er talið að kostnaðarauki Reykjavíkurborgar nemi umþaðbil einum milljarði króna á ári. Laun kennara hækka um 25 prósent á samningstímanum, sem er fram í mái, árið 2008. Þeir fá 130 þúsund króna eingreiðslu strax og 75 þúsund króna eingreiðslu næsta sumar. launin hækka strax um 5,5 prósent, afturvirkt til fyrsta október, um þrjú prósent um áramót, tvö og hálft prósent árið 2006, um 2,25% í ársbyrjun 2007 og um sömu tölu í uppahfi árs 2008. Þá fá þeir tveggja prósenta viðbótarlífeyrisgreiðslur frá vinnuveitendum og tæplega 49 þúsund króna persónuuppbót, eða annaruppbót, í lok hverrar skólaannar. Kennsluskylda kennara verður lækkuð um eina klukkustund á viku á næsta ári og um aðra klukkusutnd á þarnæsta ári og verða þær þá komnar niður í 26 stundir á viku. Kennarar eiga á móti að nota tímann til undirbúnings. Þótt niðurstaðan sé í mörgum tilvikum svipuð sáttaatillögu Ríkissáttasemjara, sem kennarar kolfelldu, leggja samningamenn kennara til við kennara að tillagan verði samþykkt. Bæði hafi ýmsir annmarkar verið sniðnir af tilllögunni og með þessu móti þurfi ekki að sæta niðurstöðu kjaradóms, sem fengi vissar forsendur fyrirfram. Nýi samningurinn, sem undirritaður var hjá ríkissáttasemjara í gær, verður nú borinn undir atkvæði og sjötta desember á að liggja fyrir hvort hann verður samþykktur, eða felldur, en verði hann felldur, hefst verkfall væntanlega á ný. Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir samninginn hafa þau áhrif að það reyni á endurskoðunarákvæði sambandsins í haust. Hann segir tóninn gefinn um það hvernig haldið verði á samningum við opinbera starfsmenn. Kristján segir samninga kennara langt umfram það sem gangi og gerist og því muni hans félagsmenn líklega endurskoða sínar samningsforsendur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×