Vigdís afhendir ekki verðlaun 15. júní 2004 00:01
Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands vill ekki afhenda leiklistarverðlaun á Grímunni vegna þess að hátíðin er að hluta til kostuð af Baugi Group. Hún vill forðast pólitíska umræðu. Vigdís segist ekki skilja í forseta Íslands að synja fjölmiðlalögunum staðfestingar. Nær hefði verið að gefa þjóðinni tækifæri til að greiða atkvæði um Kárahnjúkavirkjun. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum var með eins konar uppskeruhátíð í dag þar sem tekið var á móti á styrk frá Norræna menningarsjóðnum upp á fjóra og hálfa milljón króna og ýmsum velunnurum þakkað. Þá var farið yfir starf stofnunarinnar á síðasta ári og spennandi verkefnum, sem framundan eru, lýst. Vigdís Finnbogadóttir ræddi við fréttamann að athöfninni lokinni og bar þar á góma forsetakosningarnar og lag sem gárungarnir á Baggalút hafa samið Vigdísi til heiðurs en þeir hvetja hana til að bjóða sig fram aftur og segjast sakna hennar. „Þetta er auðvitað liðin tíð í mínu lífi en ég væri nú dálítið skrýtin ef ég fylgdist ekki með þessu. Annars læt ég þetta mig ekki miklu skipta,“ segir Vigdís. Þegar fréttamaður ætlaði að spyrja hana út í þær fregnir sem fréttastofan hafði fengið að Vigdís hefði hætt við að veita verðlaun á Grímunni - íslensku leiklistarverðlaununum sem fram fara á morgun - stöðvaði Vigdís Finnbogadóttir viðtalið og sagðist ekki hafa hætt við að veita verðlaun heldur aldrei samþykkt það. Hún teldi ekki gott að taka þátt í viðburði sem þessum, sem kostaður væri af þessu umdeilda fyrirtæki, á þessum viðkvæma tímapunkti. Með neitun sinni væri hún þó ekki að taka neina afstöðu. Hún hefði ekkert á móti Baugi en vildi ekki draga athyglina frá leiklistarverðlaununum því fólk myndi ósjálfrátt tengja hana við embætti forseta Íslands. Hún sagði þá við fréttamann og myndatökumann að hún skyldi ekki hvers vegna Ólafur valdi þessi lög til að synja staðfestingu. Betra hefði verið að leggja Kárahnjúkavirkjun í dóm þjóðarinnar. Það hefði hún sjálf að líkindum gert í hans sporum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Útkall vegna hópslagsmál í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira