Innlent

Uppsögn dregin til baka

Iceland Express hefur dregið til baka uppsagnir 34 flugliða félagsins. Uppsagnirnar áttu að taka gildi um næstu mánaðamót. Flugfreyjufélag Íslands og Iceland Express eiga nú í viðræðum um nýjan kjarasamning fyrir flugfreyjur og flugþjóna félagsins. Í tilkynningu frá flugfélaginu segir að viðræðunum hafi miðað vel og því hafi uppsagnirnar verið dregnar til baka. Ásdís Eva Hannesdóttir, formaður Flugfreyjufélagsins, segir að flugliðunum sé mjög létt. Í kjölfarið verði betri gangur á kjaraviðræðunum. Nú sé komist hjá því að flugliðarnir verði ráðnir hjá bresku rekstrarfélagi eins og til stóð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×