Innlent

Naglarnir óþarfir

Margir ökumenn brugðust skjótt við í kuldakastinu sem gerði í vikunni og létu setja vetrardekk undir bíla sína. Lögum samkvæmt má ekki aka á negldum dekkjum fyrr en eftir 1. nóvember en lögreglan segist ekki munu bregðast við naglaglamri þótt hálka í höfuðborginni sé á bak og burt. Að sögn Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík, fettir lögreglan ekki fingur út í negld dekk hafi aðstæður boðið upp á slíkt. Hins vegar telur hann nagladekk óþörf í vetrarumferðinni í höfuðborginni þar sem að sjaldan verði veruleg ófærð. Geir Jón ekur sjálfur um á heilsársdekkjum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×