Innlent

Ekkert vandamál

Það er ekki stefnt að því að eitt fagráðuneyti hafi yfirumsjón með útgáfu leyfa til fiskeldis, að sögn Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. "Ég lít ekki á leyfisveitingarnar sem eitthvert vandamál, " segir Árni. "Jafnvel þó það þurfi að sækja um fleiri en eitt leyfi snýr það ekkert að stjórnsýslunni í ráðuneytunum sérstaklega. Það er einfaldlega um það að ræða að atvinnuvegaráðuneytin, umhverfisyfirvöld og sveitarfélög sjá um þetta. Þetta á ekki að vera neitt stórvandamál."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×