Sex milljarða tekjur árið 2007 22. október 2004 00:01
Óraunhæft er að spá stýrihóps um aukið verðmæti sjávarfangs nái fram að ganga Samkvæmt spánni var gert ráð fyrir að útflutningsverðmæti fiskeldis yrðu komin upp í 36 milljarða króna árið 2012. Í fyrra nam útflutningsverðmætið 1,5 milljarði króna. Í skýrslu Valdimars Inga Gunnarssonar um stöðu og framtíðaráform í íslensku fiskeldi kemur fram að þessi spá, sem kemur fram í skýrslu stýrihópsins sem gefin var út í október árið 2002, sé ekki raunhæf. Ekki liggi fyrir áætlanir um stórfellda uppbyggingu í fiskeldi hér á landi. "Til að það náist [36 milljarða króna útflutningsverðmæti] , þarf að framleiða 150 þúsund tonn af verðminni tegundum eins og laxi og þorski," segir í skýrslu Valdimars Inga. "Heimilt er að framleiða rúmlega 20 þúsund tonn af eldislaxi og er líklegt að framleiðslan fari ekki yfir það vegna andstöðu við við laxeldi, óhagstæðs markaðsverð og harðrar samkeppni." Valdimar Ingi telur hugsanlegt að markmið stýrihópsins um að útflutningsverðmæti fiskeldis verði sex milljarðar árið 2007 náist. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir að skýrsla stýrihópsins hafi fyrst og fremst verið sett fram til að sýna hverjir möguleikarnir væru ef allt gengi að óskum. "Þetta var ekki einhver áætlun eða markmið," segir Árni. "Aðalatriðið er að við stöndum skynsamlega að uppbyggingu fiskeldis." Aðspurður segist Árni ekki óttast að uppbygging fiskeldis nú fari eins og fiskeldisævintýrið á níunda áratugnum þegar fjöldi fyrirtækja varð gjaldþrota. Hann segir að þróunin í fiskeldi hérlendis sé hæg og það sé ekki endilega neikvætt. Hluti af skýringunni sé að opinberir sjóðir séu ekki að fjármagna fiskeldið heldur standi fyrirtækin straum af öllum kostnaði sjálf. Árni segir að ýmsir utanaðkomandi þættir hafi staðið fiskeldinu fyrir þrifum. Gengisþróun hafi verið neikvæð sem þýði að afurðaverð hafi verið fremur lágt. Eins hafi verðlækkanir á mörkuðum, sérstaklega lægra verð á laxi, haft áhrif. "Þetta sýnir okkur líka að ef verðþróun á erlendum mörkuðum og gengisþróunin verður hagstæð þá geta hlutirnir gerst ansi hratt," segir Árni.
Fréttir Innlent Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Sjá meira