Jón byrjar á Símanum 14. september 2004 00:01
Jón Sveinsson verður næsti formaður einkavæðingarnefndar. Stærsta verkefni hans verður að selja Símann. Þingmenn Framsóknarflokksins hafa sett það skilyrði fyrir sölunni að lokið verði við uppbyggingu á dreifikerfi fyrirtækisins. Dreifikerfi er hins vegar loðið hugtak og ekki á hreinu við hvað er átt. Halldór Ásgrímsson, verðandi forsætisráðherra, segist gera ráð fyrir því að Jón Sveinsson verði formaður Einkavæðingarnefndar, enda hafi hann starfað í nefndinni um skeið. Hann segir að stærsta verkefni nefndarinnar verði Landssíminn. Halldór segir af og frá að sala símans hafi verið sett á ís. Öðru nær þurfi að flýta því verkefni og hann segist ætla að setja eins mikinn kraft í verkefnið á næstunni og mögulegt er. Þingmenn Framsóknar hafa lýst því yfir síðustu daga að ljúka verði uppbyggingu dreifikerfis símans áður en hann verði seldur. Þetta er afar óljóst orðalag svo ekki sé meira sagt, því dreifikerfi símans er flókið og margslungið fyrirbrigði. Því má skipta í að minnsta kosti 6 hluta. Fyrst er að nefna almenna símkerfið, sem liggur um allt land. Þá er það gsm kerfið sem nær til 98 prósenta landsins og nmt farsímakerfið sem nær til 99 prósenta landsins. Þetta eru símkerfin. Þá komum við að örbylgjunni og ljósleiðaranum. Ljósleiðarinn liggur um allt landið, en ljósleiðaranetið nær nú til 35 þúsunda heimila, aðallega á höfuðborgarsvæðinu og á Húsavík, en alls eru tæplega 100.000 heimili í landinu. Þá er komið að ISDN kerfinu, sem eru 128 kílóbæta tengingar. Síminn hefur þá skyldu að koma ISDN kerfinu á öll heimili landsins. Enn vantar um 65 heimili til að það sé uppfyllt og er kostnaður við það áætlaður að hámarki 130 milljónir króna. Það ætti því að vera auðvelt að uppfylla það skilyrði, ef það er það sem Framsóknarmenn eiga við með uppbyggingu dreifikerfisins. Eigi þeir hins vegar við að ljúka þurfi uppbyggingu ADSL kerfisins þyngist róðurinn. Það kerfi nær til 92ja prósenta þjóðarinnar, og er tengt við rúmlega 40 símstöðvar. Stjórnarformaður símans segir að tengja þurfi um 140 símstöðvar til að tengja þau 8 prósent sem upp á vantar, og hefur forstjórinn sagt að það kosti svipað og kostnaðurinn við 92 prósentin sem þegar eru tengd. Ljóst er að sá kostnaður mundi hlaupa á milljörðum króna.
Fréttir Innlent Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Fleiri fréttir Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sjá meira