Jón Arnór spilaði félagana uppi 10. nóvember 2004 00:01
Jón Arnór Stefánsson spilaði uppi félaga sína í 27 stiga stórsigri Dynamo St. Pétursborgar, 75-102, á KK Belgrad í öðrum leik liðsins í Evrópudeild félagsliða sem fram fór í Serbíu í fyrrakvöld. Jón Arnór gaf 8 stoðsendingar og stal 6 boltum á þeim 30 mínútum sem hann lék auk þess að skora 8 stig en hann skaut aðeins sex sinnum á körfuna og hitti fjórum sinnum. Jón Arnór náði einnig að verja eitt skot og taka eitt frákast. Kelly McCarty skoraði mest fyrir Dynamo eða 30 stig, Hvítrússinn ungi Vladimir Veremeenko skoraði 17 stig og annar Evrópubúi, Ognjen Askrabic, skoraði 16 stig en hann er einmitt frá Serbíu og Svartfjallalandi. Dynamo hefur unnið fyrstu leiki sína á afar sannfærandi hátt því ísraelska liðið Hapoel Tel Aviv steinlá, 98-54, í fyrsta leiknum. Bæði KK Belgrad og Hapoel Tel Aviv hafa síðan unnið leik í riðlinum og því lítur þetta vel út fyrir Dynamo. Jón Arnór var með 13 stig og 4 stoðsendingar í fyrsta leiknum og er því með 10,5 stig, 6 stoðsendingar og 3,5 stolna bolta að meðaltali í fyrstu leikjum Íslendings í Evrópudeildinni. Næsti leikur Dynamo í Evrópudeildinni er gegn Khimik Yuzhny frá Úkraínu sem hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum en tapaði fyrir KK Belgrad í fyrsta leik. Dynamo náði að rífa sig upp eftir fyrsta tap vetrarins í rússnesku deildinni um síðustu helgi.
Íþróttir Mest lesið Innlit í löngu úrelta klefa Íslands sem Ceferin vill láta taka í gegn Íslenski boltinn Mega ekki sýna neikvæð viðbrögð í garð Trumps Sport Rúrik segir að Füllkrug vilji ekki láta laga tennurnar í sér Enski boltinn Frek stuðningskona Phillies fordæmd fyrir að taka bolta af barni Sport Segir að enska liðinu hafi farið aftur undir stjórn Tuchels Fótbolti Ronaldo skoraði tvö meðan andi Diogo Jota sveif yfir vötnum Fótbolti Uppgjörið: Þróttur - FHL 2-2 | Jafnt í Laugardalnum Íslenski boltinn Tveir sterkir póstar úr leik hjá Frökkum fyrir leikinn gegn Íslandi Fótbolti Bætti heimsmetið aftur Sport Angel Reese í hálfs leiks bann Körfubolti Fleiri fréttir „Held að þetta séu auðveldustu leikirnir sem þú spilar“ Depay orðinn markahæstur í sögu Hollands Nýliðar KA/Þórs byrja með sigri Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Andrea tók sjötta sætið Uppgjörið: Þróttur - FHL 2-2 | Jafnt í Laugardalnum Langþráð hjá Melsungen Piastri sagt að hleypa Norris fram úr en Verstappen vann Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Ingibjörg fékk rautt í fyrsta leiknum með Freiburg Mega ekki sýna neikvæð viðbrögð í garð Trumps Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Rúrik segir að Füllkrug vilji ekki láta laga tennurnar í sér Segir að enska liðinu hafi farið aftur undir stjórn Tuchels Innlit í löngu úrelta klefa Íslands sem Ceferin vill láta taka í gegn Frek stuðningskona Phillies fordæmd fyrir að taka bolta af barni Angel Reese í hálfs leiks bann Ronaldo skoraði tvö meðan andi Diogo Jota sveif yfir vötnum Dagskráin í dag: Formúlan og fleira Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Crouch tapaði í Fantasy og tók út refsingu í utandeildinni Glugginn opinn til Tyrklands fyrir Onana Tveir sterkir póstar úr leik hjá Frökkum fyrir leikinn gegn Íslandi Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Bætti heimsmetið aftur „Gríðarlega mikilvægur sigur“ Viggó markahæstur í eins marks tapi „Ekki boðlegt fyrir lið eins og Þór/KA“ KA lagði nýliðana á Selfossi Fjölnir fallinn og rafmögnuð lokaumferð í kortunum Sjá meira