Tólf Íslendinga enn saknað 28. desember 2004 00:01
Tólf Íslendingar, þar af þrjú börn, á ferðalagi í Taílandi og á Bali hafa ekki gert vart við sig eftir hamfarirnar í Asíu. Tuttugu og þrír nýstúdentar frá Fjölbrautarskóla Suðurnesja eru á leið til Taílands á föstudag. Ekki er ljóst hvort ferðin fæst endurgreidd hætti stúdentarnir við segir talsmaður ferðaskrifstofunnar. Tólf Íslendingar, sjö í Taílandi og fimm á Bali, hafa ekki gert vart við sig ennþá. Í þessum hópi eru þrjú börn, tvö á Bali og í eitt í Taílandi. Fólkið er ekki talið vera á hættusvæði en þó er ekki vitað um dvalarstað allra. Pétur Ásgeirsson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu, segir að ættingjar fólksins séu í stöðugu sambandi við ráðuneytið en haldi ró sinni. Hópur í Phuket hefur óskað eftir aðstoð íslenskra stjórnvalda til að fara til Bankok. Pétur segir að ekki væsi um hópinn en hann vilji burt og ráðstafanir verði gerðar á næstu dögum. Ferð stúdentanna af Suðurnesjum sem eru á leið til Taílands er heitið til Hua hin, strandstaðar sem er suður af Bangkok og ekki inni á hættusvæðinu. Engu að síður er mörgum órótt vegna ferðalagsins enda ástandið í landinu ótryggt vegna hörmunganna. Tómas Tómasson, sölustjóri Langferða Kuoni, segir marga hafa hringt og lýst áhyggjum sínum, ekki síst foreldrar og aðstandendur krakkanna, og hann hafi reynt að útskýra málið fyrir þeim. „Þessir voðaatburðir hafa ekki haft áhrif á öðrum svæðum í Taílandi heldur en þessu syðsta svæði. Það hefur því í rauninni ekkert breyst varðandi aðra áfangastaði í Taílandi,“ segir Tómas. Hann segist ekki geta svarað því á þessari stundu hvort komi til greina að endurgreiða krökkunum því verið sé að athuga þau mál hjá samstarfsaðilum en honum persónulega finnst ekki formleg ástæða til að gera það. Þó verði það auðvitað skoðað með opnum hug með hliðsjón af atburðunum. Utanríkisráðuneytið varar við ferðalögum til suðvesturhluta Taílands, þar með talið Phuket, Krabi, Phi Phi eyju, sem og annarra eyja í nágrenninu. Ferðalöngum til annarra svæða í Taílandi er ráðlagt að afla sér nákvæmra upplýsinga um hvort öruggt sé að ferðast til viðkomandi áfangastaðar. Utanríkisráðuneytið varar við ferðalögum til Norður-Súmötru, og þá sérstaklega til Atsje- héraðs. Þá er varað við ferðalögum til suðausturstrandar Indlands og þá sérstaklega til Tamil Nadu héraðs, Andra Pradesh og til eyjanna Nicobar og Andaman. Stjórnvöld í Srí Lanka og á Maldíveyjum hafa lýst yfir neyðarástandi og ráðleggur utanríkisráðuneytið íslenskum ríkisborgurum frá því að ferðast þangað nema brýna nauðsyn beri til. Flugvél frá Flugleiðum fer frá Keflavíkurflugvelli til Phuketeyja á vegum sænskra stjórnvalda í kvöld til að sækja sænska ferðamenn sem þar eru staddir. Með flugvélinni fara einnig hjálpargögn frá Rauða krossi Íslands og níu tonn af vatni frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Með vélinni er fréttamaður frá Stöð tvö.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fleiri fréttir Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Sjá meira