Líður langbest á morgnana 18. desember 2004 00:01
Björg Eva Erlendsdóttir fréttakona á Ríkisútvarpinu er 44 ára í dag. Tímamót hringdu í Björgu, þar sem hún var við störf á Fréttastofu Útvarps. Björg Eva er þingfréttamaður útvarpsins og við spurðum hana fyrst hvað hún væri að gera meðan þingið er í jólaleyfi. " Ég geng bara vaktir. Morgunvaktirnar helst. Ég var nú á morgunvakt hérna í nokkur ár. Mér finnst það ákaflega þægilegt." Og tímamótin lögðu spurningu fyrir Björgu Evu sem er allt að því ósæmileg, svona kannski næst því að spyrja konu um aldur. Hvenær vaknarðu á morgnana? "Ég vakna alltaf hálf sex. Ég vakna ekki fyrr en þetta af því ég þarf ekki að mála mig fyrir morgunvaktirnar í útvarpinu. Ef ég þyrfti að mála mig yrði ég að vakna hálftíma fyrr" Það slær þögn á tímamótamann. Eins gott að hann þerf ekki að mála sig. Þú ert svona mikil morgunmanneskja? "Já mér finnst afskaplega gott að vakna snemma. Og ég er svo sem ekki ein. Við erum fleiri sem viljum vera í vinnunni á morgnana. Vinur minn Gissur Sigurðsson, hann hringir stundum í rauðabýtið." Hvernig hefur þingið verið í vetur? "Það hefur verið frekar dauft eins og allir hafa séð sem fylgst hafa með. Þingmenn segja mér að þeir séu bara enn að jafna sig eftir sumarið enda var það ótrúlega átakamikið og reyndar má segja að þetta hafi verið alveg stanslaust stuð í þinginu í fyrra frá því eftirlaunafrumvarpið var lagt fram. En ég held að þeir séu að sækja í sig veðrið. Ég spái því að þetta verði miklu tíðindameira eftir að þingið kemur saman aftur, 24. janúar." Og hvað ætlarðu svo að gera á sjálfan afmælisdaginn? "Ég byrja nú á góðum morgunmat. Ég ætla í bæinn og kaupa jólagjafir en svo held ég obbolítið boð. Ég er ekki búin að skrifa gestalistann en býð sjálfsagt einhverjum starfsfélögum mínum."
Innlent Menning Mest lesið Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? Menning Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Lífið Saga jarðaði alla við borðið Lífið Fleiri fréttir Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Sjá meira