Lífið

Fitna eftir giftingu

Karlmönnum sem kvænast í annað sinn hættir til að breytast í kyrrsetumenn um leið og hjónabandið hefst og fara að bæta á sig kílóum. Samkvæmt rannsókn vísindamanna við Harvard háskóla, sem birtist í tímaritinu Journal of Epidemiology and Community Health, eru fráskildir karlmenn nokkuð duglegir við að sinna líkamsrækt og þó þeir drekki meir bjór og borði óhollari mat en þeir sem kvæntir eru, eru þeir léttari að meðaltali. Þegar þeir kvænast á ný snarbreytist þetta hinsvegar til hins verra. Í rannsókninni var 40 til 75 ára karlmönnum fylgt eftir í tæpan áratug. Flestir voru þeir í duglegir að sinna heilsurækt meðan þeir voru makalausir, en um leið og þeir kvæntust á ný breyttust þeir í kyrrsetumenn og bættu flestir verulega á sig. Vísindamenn leggja út af þessu þannig að menn sem kvænast aftur hafi einfaldlega ekki tíma eða færi á að sinna heilsurækt eftir að hafa tekið upp samband við nýja konu. Auk þess komist oft meiri regla á máltíðir eftir brúðkaupið, sem þýðir fyrir marga að þeir borða einfaldlega meira.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.