Lífið

Asinn styttir orðin

Brynja Baldursdóttir, kennari í Hagaskóla, kannast vel við hina nýju íslensku stafsetningu og segir hana birtast í skólastarfinu. "Þetta kemur fram í verkefnum hjá krökkunum, ýmis orð hafa fengið nýjan rithátt." Hún segir þó að í hefðbundnum stafsetningarverkefnum, þar sem skrifað er upp eftir upplestri, gæti þessa síður enda hlusti krakkarnir vel eftir framburði orðanna. "Ég hef rætt þetta og bent krökkunum á að það er mikill munur á rituðu msn-máli annars vegar og hefðbundnu rituðu máli hins vegar." Brynja rekur breyttan rithátt til flýtisins sem einkennir samskipti krakkanna á msn-forritinu, þar gildir að koma orðunum sem fyrst frá sér til að fá svör sem fyrst. Og vissulega hefur hún áhyggjur af þróun málsins. "Það er mikilvægt að brýna fyrir krökkunum að gera greinarmun á msn-máli og hinu rétta."





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.