Lífið

Útskrifaðist frá lögregluskóla FBI

Fyrsta íslenska lögreglukonan, Berglind Kristinsdóttir, útskrifaðist frá lögregluháskóla bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, síðastliðinn föstudag. Berglind, sem er lögreglufulltrúi hjá ríkislögreglustjóra, var í hópi 249 nemenda sem útskrifuðust þennan dag. Flestir nemendur voru frá Bandaríkjunum en 24 frá öðrum löndum. Alls voru 18 konur meðal þeirra sem útskrifuðust. Lögregluháskóli FBI er þekktur á alþjóðavettvangi fyrir þetta nám sem stendur yfir í ellefu vikur og er fyrir yfirmenn í lögreglu. Þar er kennd stjórnun, aðferðafræði við rannsóknir afbrota, afbrotafræði og margt fleira, auk líkamsþjálfunar. Berglind er sjötti íslenski lögreglumaðurinn sem útskrifast frá skólanum Áður hafa útskrifast eftirtaldir lögeglumenn: Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík (1985) Guðmundur Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra (1993) Gunnar Jóhannsson, varðstjóri á Akureyri (1995) Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík (1999) Jón F. Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra (2000)





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.