Lífið

Ísland í brennidepli í vestanhafs

Þrír bandarískir fjölmiðlar beina kastljósinu að Íslandi þessa dagana en skemmst er að minnast „The Amazing Race“ þáttaraðarinnar þar sem Ísland kemur við sögu í tveimur þáttum. Á vef ferðamálaráðs Íslands er greint frá því að næstkomandi laugardag verði þáttur ABC-stöðvarinnar, „Good Morning America“, helgaður jólum um víða veröld og þar fái íslensku jólasveinarnir sitt pláss. Daginn eftir verður löng grein í ferðablaði The New York Times um Ísland og landinu lýst sem ákjósanlegum áfangastað fyrir helgarferðir og fjölbreyttar ævintýraferðir. Rétt fyrir jól verður Ísland svo í brennidepli í þætti Fox-sjónvarpsstöðvarinnar, „The Swan“, sem sendur er út um öll Bandaríkin. Einar Gústavsson, forstöðumaður skrifstofu Ferðamálaráðs í New York, segist himinlifandi með það hvernig markaðsstarfið vestanhafs hafi tekist.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.