Lífið

Þroskasaga graslauks

Erla Huld Sigurðardóttir sýnir  leirlist og myndlist í Listagjánni í Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi í desember.  Sýningin nefnist Trú, von og kærleikur.  Verkin eru unnin út frá þroskasögu graslauks.  Byrjað var á málverkunum sem eru akrýlmyndir og leirverkin unnin út frá þeim. Sýningin er sölusýning.   Erla Huld útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1998.  Hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum.  Á menningarhátíðinni Vor í Árborg s.l. vor var  Erla Huld með opna vinnustofu sína að Víðivöllum 2, þar sem hún sýndi m.a. handlaugar og aðra listmuni.  Hún hefur kennt myndlist og leirlist í Vallaskóla s.l. 2 ár og í Myndlistarskóla Kópavogs í 7 ár.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.