Lífið

Ungfrú Perú er fegurst

Fegursta kona heims kemur í ár frá Perú. Ungfrú Perú bar sigur úr bítum þegar hin árlega ungfrú heimur, eða miss World, fór fram í Kína í gær. Íslenskar fegurðardrottningar áttu lengi vel góðu gengi að fagna í þessari keppni, en á síðar árum hefur farið lítið fyrir íslenskri fegurð á verðlaunapallinum. Keppnin fór fram í Sayna í Kína, vinsælum sumarleyfisstað, en það er einkum merkilegt í ljósi þess að skammt er síðan keppni af þessu tagi var vestrænt villutrúareinkenni í augum stjórnvalda í Peking.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.