Sport

Jakob með 17 stig fyrir Birmingham

Jakob Sigurðarson, sem leikur með körfuknattleiksliði Birmingham Southern háskólanum í Alamaba í Bandaríkjunum, skoraði 17 stig þegar liðið tapaði á móti Indiana State, 55-62. Jakob lék í 33 mínútur, tók þrjú fráköst og stal einum bolta. Hann nýtti skot sín vel, sérstaklega fyrir utan þriggaj stiga línuna þar sem þrjú af sex rötuðu rétta lið. Helgi Margeirsson, félagi Jakobs, lék aðeins 6 mínútur í leiknum og tók eitt frákast. Birmingham hefur unnið fjóra leiki og tapað þremur það sem af er.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×