Reykti um borð þrátt fyrir bann 3. desember 2004 00:01
Björn Thoroddsen flugstjóri er síðasti maðurinn eða með þeim síðustu sem reyktu um borð í flugvélum Flugleiða. Hann telur að þeir hafi verið þrír til fjórir flugmennirnir sem komust upp með að reykja í flugstjórnarklefanum síðustu árin þó að reykingar væru bannaðar um borð. Björn reykir pípu. Hann hætti að fljúga fyrir þremur árum. "Flugleiðir ákváðu að verða reyklaust félag og ári síðar var það fest í lög. Þegar ákvörðun Flugleiða var kynnt FÍA var mér sagt að formaður félagsins á þeim tíma hefði bent á að það væru nokkrir flugstjórar sem væru ólæknandi nikótínistar og spurt hvað ætti að gera við þá? Sagan segir að stjórnendur fyrirtækisins hafi sagt að þeir yrðu látnir í friði. Við vorum þrír eða fjórir nefndir til sögunnar og það má segja að það hafi verið þegjandi samkomulag. Ég afsakaði mig alltaf á þessu," segir Björn Thoroddsen flugstjóri. Björn kveðst aldrei hafa heyrt neitt frá fyrirtækinu um reykingabann til flugmanna eða áhafna og ekki hafi komið nein sérstök fyrirmæli til flugstjóranna um að hætta að reykja í flugstjórnarklefanum. Aðstoðarflugmennirnir hafi sagt sér að reykingarnar færu ekkert í þá. "Það kvartaði enginn. Ég reyndi að púa fram í nefið á vélinni en það kom fyrir að reykurinn fannst í eldhúsinu aftast. Loftræstingin var þannig. Það kom fyrir að flugfreyjurnar héldu að einhver væri að reykja á klósettunum og rifu upp hurðirnar aftast en fundu ekki neinn." Nokkuð var um það síðustu árin að farþegar lokuðu sig inni á klósetti til að reykja. "Við fengum bréf um að við ættum að labba aftur í, skrifa niður sætisnúmerið og skoða vegabréfið, ræða við farþegann og biðja um að lögregla væri tilbúin til handtöku við lendingu. Síðan átti að stinga farþeganum inn og hann sektaður. Ég vissi dæmi þess að flugstjórar gerðu þetta. En svo voru stöðvarstjórarnir orðnir hundleiðir á því að láta lögregluna handtaka farþega." Björn tilkynnti aldrei reykingar farþega á klósettum og bætir við að sér finnist hræðilegt að fólk geti hvergi reykt um borð í flugvélum. "Það ætti að vera einhver staður í flugvélum fyrir þá sem reykja."
Menning Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira