Þörf umræða - Grein Súsönnu í dag 2. desember 2004 00:01
Viðbrögð við grein Súsönnu Svavarsdóttur hér á Vísi, þar sem launakröfur listamanna eru í brennidepli, hefur vakið mikil viðbrögð. Sitt sýnist hverjum um þóknun til þeirra listamanna sem komu fram á tónleikum til styrktar krabbameinssjúkum börnum en mörgum þykir hár annar kostnaður sem af tónleikahaldinu hlaust. Bergþór Pálsson spyr hvort það sé ekki eðlileg krafa að opinbert uppgjör sé alltaf lagt fram þegar um peningasafnanir er að ræða? Hrefna Sigurðar skrifar; "Það er ekkert að því að listafólkið fái eitthvað, en ef fólk kemur fram í fjölmiðlum með tárin í augunum og segist koma til að styrkja þennann málstað og ekki taka neitt fyrir nema smá upp í kostnað, sem reynist eins og greinarhöfundur segir svo réttilega vera glannaleg græðgi það finnst mér vera blekking." Bergþór Pálsson skrifar; "Er ekki eðlileg krafa að opinbert uppgjör sé alltaf lagt fram þegar um peningasafnanir er að ræða? Allur ágóði rennur til... virðist hafa ýmsa merkingu og frábært að fá umræðu um það. Hver er kostnaðurinn og hvert fara peningarnir? Laun handa starfsfólkinu? Beint í vasa þeirra sem eiga bágt? Allir sem gefa í þessar safnanir, vinnu eða peninga, eiga rétt á að vita þetta. Það eru forréttindi að vera aflögufær og gaman að gefa vinnuna sína án þess að hafa af því nokkurn hag nema ánægjuna og innri gleði, sem getur sannarlega verið mikils virði. Það er þó efni í aðra umræðu af hverju aðrar starfsstéttir en listamenn eru aldrei beðnar um að gefa af vinnunni sinni. En vonandi getum við flest séð af einhverju og glaðst yfir því að styðja þá sem á því þurfa að halda sem oftast og sem mest. Ef allir hlutir eru á hreinu, verður gleðin líka fölskvalaus." Kristín skrifar; "Af hverju bara sumir ? Ég sé ekki af hverju eingöngu listamenn eiga að gefa vinnu sína, þar sem allir aðrir sem að undirbúningi styrktartónleikana komu, að undanskildum Ólafi tónleikahaldara, virðast hafa fengið greitt fyrir sína vinnu." Auður F. spyr; "Hvað hefur fólk að fela? Súsanna sagði það sem ég vildi sagt hafa, en Bergþór talar um að það séu eingöngu listamenn sem séu beðnir að gefa vinnuna sína. Mér finnst þarna gleymast daglaunafólkið, sem með óeigingjörnu starfi í hinum ýmsu líknarfélögum og klúbbum lætur af hendi rakna ómælda vinnu og jafnvel peninga til styrktar góðum málstað. Ég skil ekki af hverju ekki má leggja öll spil á borðið varðandi svona framkvæmd. Auðvitað skilja allir að svona nokkuð kostar og sjálfsagt að listamenn fái útlagðan kostnað greiddan, en þeir eru menn að meiri ef þeir gefa vinnuna sína sem sitt framlag til líknarmála." Hér má lesa grein Súsönnu og viðbrögð lesenda Vísis við henni. Loks má benda á að á morgun skrifar Súsanna Svavarsdóttir skrifar annan pistil hér á Vísi, þar sem fjallað verður um hlut kirkjunnar.
Innlent Menning Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira