Sport

Allt að verða klappað og klárt

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að knattspyrnumaðurinn Ólafur Ingi Skúlason gangi til liðs við hollenska liðið Groningen á næstunni. Hollenska liðið hefur náð samkomulagi við Arsenal um kaupverð á Ólafi Inga og er það samkvæmt heimildum Fréttablaðsins um tíu milljónir. Ólafur Ingi sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hann ætti von á því að fá leyfi frá Arsenal á næstu dögum til að ræða við forráðamenn Groningen um sinn eigin samning auk þess sem hann þarf að gangast undir læknisskoðun. Ólafur hefur átt við meiðsli að stríða í nára að undanförnu en sagðist þó ekki hafa neinar áhyggjur af því að það gæti skemmt fyrir. "Þetta eru ekki alvarleg meiðsli en þau geta verið þrálát. Ég er enn hálfslappur og er ekki alveg búinn að jafna mig. Ég æfði með liðinu í gær og fann til eftir æfinguna en er miklu betri í dag. Næstu dagar koma væntanlega til með að skera úr um hversu skjótur batinn verður," sagði Ólafur Ingi. Hann sagðist stefna að því að spila varaliðsleik með Arsenal 14. desember næstkomandi og ef það markmið næðist myndu forráðamenn Groningen væntanlega koma til London og ganga frá málum þá. Aðspurður um lengd samningsins við Groningen sagðist hann búast við að hann yrði samningsbundinn Groningen í annað hvort tvö og hálft eða þrjú og hálft ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×