Sport

Rivers hefndi sín á Orlando Magic

Doc Rivers, þjálfari Boston Celtics, náði að hefna sín á gamla félagi sínu, Orlando Magic, með góðum sigri á útivelli, 117-101, í fyrrinótt. Forráðamenn Magic létu Rivers fara eftir rúmlega fjögur ár hjá félaginu. Rivers fullyrti þó að hann bæri engan kala til Magic. "Leikurinn var fyrst og fremst eign leikmannanna sjálfra sem svöruðu kallinu í kvöld," sagði Rivers.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×