Lætur ekki deigan síga 28. nóvember 2004 00:01 "
Mér líður mun betur núna og er farin að anda léttar en ég gerði þegar þessi ósköp dundu yfir," segir Ragnheiður Ragnarsdóttir, sunddrottning úr Sundfélagi Hafnarfjarðar. Ragnheiður er á batavegi eftir slæma byltu á hálkubletti í vikunni sem varð til þess að hún þríbrotnaði á ökkla. Hún verður klár í slaginn á ný eftir sex vikur. Óhappið átti sér stað þegar Ragnheiður var á leið í skóla á þriðjudagsmorgun en meiðsl hennar þýða að hún tekur ekki þátt í Evrópumeistaramótinu í sundi sem fram fer í næsta mánuði. "Sem betur fer er það eina mótið sem ég missi af þar sem læknar segja að aðgerðin sem ég gekkst undir í kjölfar slyssins hafi gengið afar vel og ég á að geta hafið æfingar á ný um leið og ég losna við gifsið eftir sex vikur." Í aðgerðinni var ökkli Ragnheiðar skrúfaður saman á þremur stöðum en að sögn Ragnheiðar á það ekki að há henni á neinn máta þegar hún stingur sér til sunds að nýju. "Ef þetta grær eins og það á að gera eiga læknarnir ekki von á slíku og ég fyrir mitt leyti ætla út í laug við fyrsta tækifæri enda stórmót fram undan á næsta ári sem ég vil taka þátt í og reyna að standa mig vel. Það þýðir að ég verð að vinna upp þann tíma sem mun tapast frá æfingum. Kosturinn við þetta er þó sá að ég er komin í jólafrí á undan áætlun." Tveir stórviðburðir fara fram hjá íslensku sundfólki á næsta ári. Í júníbyrjun fara fram Smáþjóðaleikarnir í Andorra og mánuði síðar hefst svo Heimsmeistaramótið í sundi í Montreal í Kanada. "Ég ætla mér að standa mig vel á þessum mótum báðum og ég er viss um að ég get unnið upp þann tíma sem ég missi meðan ég næ mér eftir aðgerðina. Ég læt mitt ekki eftir liggja þegar kemur að þessum tveimur mótum." albert@frettabladid.is
Íþróttir Mest lesið Söknuður af æskufélaganum: „Áttum að vera gömlu karlarnir“ Körfubolti „Við vorum algjörlega týndir“ Enski boltinn Eitt vandræðalegasta kvöldið í sögu Manchester United Enski boltinn „Ég er ekki Hitler“ Fótbolti United banarnir drógust á móti Leeds bönunum Enski boltinn Eir Chang fær norrænan styrk fyrir efnilegt íþróttafólk Sport Æfðu miðjuskotin: Síðasta æfing strákanna fyrir stóru stundina í myndum Körfubolti Isak gæti spilað fyrsta leikinn sinn á tímabilinu Enski boltinn EM í dag: Ætli Katowice sé enn versta borg í heimi og leðurjakki í hitabylgju Körfubolti Finnar byrjuðu EM á naumum sigri í Norðurlandaslag Körfubolti Fleiri fréttir Æfðu miðjuskotin: Síðasta æfing strákanna fyrir stóru stundina í myndum Söknuður af æskufélaganum: „Áttum að vera gömlu karlarnir“ „Við vorum algjörlega týndir“ „Ég er ekki Hitler“ United banarnir drógust á móti Leeds bönunum Eir Chang fær norrænan styrk fyrir efnilegt íþróttafólk Eitt vandræðalegasta kvöldið í sögu Manchester United Uppgjörið: Valur - Braga 1-3 | Valskonur töpuðu og mæta Ceciliu Rán og Karólínu Leu Finnar byrjuðu EM á naumum sigri í Norðurlandaslag Amanda og félagar mæta Blikum Strákarnir hans Guðjóns Vals byrja tímabilið vel Freyr stýrði Brann inn í riðlakeppni Evrópudeildarinnar með stæl Davíð Snær lagði upp mark í bikarsigri Isak gæti spilað fyrsta leikinn sinn á tímabilinu „Margir tittir í þessum hópi og máttum ekki við því að missa stóran mann“ Setji skugga á fyrsta leik að hann sé við Ísrael Þrír íslenskir kastarar keppa á HM í Tókýó Diljá og Karólína skoruðu báðar EM í dag: Ætli Katowice sé enn versta borg í heimi og leðurjakki í hitabylgju Svona var EM-Pallborðið Myndir: Áfallalaus æfing fyrir utan að Hilmar fékk bolta í punginn Ísabella Sara lagði upp í Meistaradeild Evrópu Segir Daníel ekki líkan pabba sem leikmanni en hafi Guðjohnsen-svægið Uppgjörið: Breiðablik - Athlone Town 3-1 | Tvö mörk á tveimur mínútum og Blikar unnu Tveir nýliðar í landsliðshópnum Arnar kynnti fyrsta hópinn í undankeppni HM Strákarnir ekki fengið neinar hótanir Albert bjartsýnn á að Eze sé lokapúslið: „Komin þvílík breidd í þetta“ Ástin sögð ástæða þess að Sancho vilji ekki Roma „Hefur komið með stál og styrk og þekkingu inn í varnarleik Stjörnunnar“ Sjá meira