Kveikja í gítarnum á sviðinu 26. nóvember 2004 00:01
Fókus, sem fylgir DV í dag, fjallar ítarlega um allt sem er að gerast í næturlífi landans. Þar á meðal um tónleika Nine Elevens á Grand Rokk í kvöld. Hversu oft kemst maður í tæri við rokkhljómsveit með svo mikið af effektum að hún þarf að ráða einn fremsta brellumeistara íslenska kvikmyndabransans til að halda utan um allt havaríið? Svarið skiptir ekki máli heldur kvöldið í kvöld. Þá spila vestfirsku geðsjúklingarnir í Nine Elevens á Grand Rokk. Þar verður sjóv. "Þegar ég tek gítarsóló skrúfa ég frá gasi og það kviknar í hausnum á gítarnum. Við erum líka með svona flash-sprengur. Þær eru eins og eldfimur bómull - funky shit. Kveikjum í þeim með sígarettum og þá kemur PÚFFFF!" segir Valdimar Jóhannsson, Valdi söngvari. Nine Elevens mæta einnig með reykvél, stróp og vindvél, kveikja á henni í sólóum "til að auka Bon Jovi-effektinn". Á bakvið er þurrísvél sem sér um þurrísfoss yfir trommusettið. "Það verður að vera með svona rugl. Taka þetta alla leið. Það er svo gaman," segir Valdi. Á tónleikum sveitarinnar á Airwaves á dögunum fengu áhorfendur nasaþefinn af effektaflippinu. Þá klikkuðu nokkur atriði en önnur slógu í gegn. Valdi lenti í vandræðum með að halda fólki frá sér þegar hann kveikti í gítarnum. "Það voru allir að reyna að ná í mig. Ég varð að reyna að forða mér. Með logandi gítar, maður. Vil ekki brenna einhverja hausa." Á bakvið sveitina á tónleikunum í kvöld verður síðan brellumeistarinn Haukur Karlsson. Hann verkar einnig þrýstiloftskútinn, festir m.a. konfettisprengjur á hann. "Á Airwaves tæmdi hann líka úr kútnum á áhorfendur. Þá kemur bara ískalt loft fram í sal. Það var frábært. Við ætlum að reyna að gera það aftur." Tónleikar Nine Elevens hefjast upp úr miðnætti en áður spilar hljómsveitin Ég. Inn kostar 500 kall en það er nú bara til að slá upp í allan sprengjukostnaðinn.
Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira