Haukur M bestur Íslendinga á imdb 26. nóvember 2004 00:01
Fókus, sem fylgir DV í dag, fór í himnaríki kvikmyndanördsins, International Movie Data Base. Þar eru upplýsingar um nánast allar kvikmyndir sem gerðar hafa verið og þar að auki er birt einkunnargjöf; útkoman af því sem skráðir notendur vefsins hafa gefið myndum í einkunn. Flestallar íslensku myndirnar eru á vefnum og hér má sjá hvernig þær koma út, í röð frá bestu myndinni til þeirrar verstu. Haukur á toppnum Mismörg atkvæði liggja til grundvallar einkununum. Þannig eru ekki nema 9 atkvæði að baki dúx-einkun myndarinnar Fyrsti apríl eftir Hauk M. Mynd Hauks slær við myndum eins og Godfather, Citizen Kane og Casablanca og verður það að teljast nokkuð góður árangur hjá kvikmyndagerðarmanninum unga! Samkvæmt þessu hefur Hauki farið rosalega fram síðan hann gerði myndina (Ó)eðli, sem fær bara 5.4 í einkunn. Kannski er árangur Stuðmannamyndarinnar Með allt á hreinu ögn trúverðugri því 78 manns liggja til grundvallar 8.0 einkunnar myndarinnar. Í þriðja sæti er svo Sódóma Reykjavík og hafa 217 manns gefið myndinni einkunn. Vinsælasta íslenska myndin samkvæmt þessum lista er 101 Reykjavík með 1628 atkvæði á bakvið ágætis einkuninni 6.9. Þar næst kemur Nói albínói með 783 atkvæði (7.0) en Cold Fever (6.7) og Englar alheimsins (7.0) eru næstar, báðar með um 470 atkvæði. Hrafn á botninum Á botninum eru svo nokkrar myndir sem löngum hafa þótt lélegar og jafnvel verið hafðar í flimtingum manna á meðal. Myndin Blossi/810551 lauk leiklistarferli Páls Banine nokkur hratt og örugglega, Reykjavík Guesthouse þótti harla glötuð og Nei er ekkert svar verður lengi í minnum höfð vegna yfirþyrmandi lélegheita. Hver man t.d. ekki eftir atriðinu í bakaríinu? Versta íslenska myndin fyrr og síðar er svo Opinberun Hannesar eftir Hrafn Gunnlaugsson og er hún meðal verstu mynda sem gerðar hafa verið í heiminum. Myndin fær aðeins 2.7 í heildareinkunn, en 112 manns hafa gefið myndinni einkunn. Hrafn getur þó huggað sig við það að hann var einu sinni góður og Hrafninn flýgur er meðal efstu íslensku myndanna með 7.4. Opinberun Hannesar fékk mjög ríflega styrki á sínum tíma og það er svo sannarlega gott til þess að vita að skattfé almennings á Íslandi sé varið til svona þarfra verka. Allan listann, þar sem sjá má einkunn yfir sextíu íslenskra mynda, er að finna í Fókus, sem fylgir með DV í dag, auk alls um skemmtanalífið og margt, margt fleira.
Menning Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Sjá meira