Íslendingar eiga tvö heimsmet 22. nóvember 2004 00:01
Íslendingar eiga tvö heimsmet í heimsmetabók Guinness og það þriðja er á leiðinni. Það mun víst vera staðreynd að engri bók er stolið í jafnmiklu mæli af bókasöfnum heimsins og bók dagsins. Og kannski við hæfi að bókin sjálf eigi það heimsmet, því hér er á ferðinni Heimsmetabók Guinness, sem í ár fagnar 50 ára afmæli sínu. Þetta er í fimmta sinn sem bókin kemur út á íslensku og það er óhætt að segja að útlit bókarinnar hefur tekið stórstígum breytingum í áranna rás. Árni Snævarr, blaðamaður, sem þýddi bókina, segir mismunandi útgáfur bókarinnar sína þá byltingu sem orðið hafi í prenttækni undanfarin tuttugu ár. Í áranna rás hefur metunum að sjálfsögðu fjölgað. Lesendur geta fræðst um hver eigi stærsta bananasafn heims, hver hafi leikið lengst á banjó og hvar stærstu nærbuxur heims sé að finna svo fátt eitt sé nefnt. Og svo við gerumst aðeins sjálfhverf; Ísland á tvö met í bókinni. Árni segir metin tvö vera elsta þingið og mestu aðsókn í bíó. Þá sé það þriðja á leiðinni, sem sé stærsta pylsa í heimi. Árni segir að sitt uppáhaldsheimsmet sé hraðasta flokkun sykurhlaupa með röri.
Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira