Fimleikafólkið með silfur heim 21. nóvember 2004 00:01
Íslenska kvennalandsliðið í fimleikum náði mjög góðum árangri á Norður-Evrópumótinu í fimleikum sem fram fór í Nakskov í Danmörku um helgina. Íslensku stelpurnar náðu öðru sætinu í liðakeppninni og þá vann hin stórefnilega Kristjana Sæunn Ólafsdóttir tvo Norður-Evrópumeistaratitla þegar hún sigraði í úrslitum í gólfæfingum og stökki. Auk þess varð Sif Pálsdóttir í öðru sæti í fjölþraut á laugardaginn þar sem Kristjana Sæunn varð fjórða og Inga Rós Gunnarsdóttir sjöunda. Sif og Kristjana háðu þar harða keppni en mistök Kristjönu á slá urðu henni dýrkeypt. Hún mætti hins vegar klár í slaginn í gær og vann glæsilega sigra á gólfi og í stökki. Viktor Kristmannsson náði bestum árangri í karlaflokki með því að hafna í 3. sæti á bæði bogahesti og tvíslá en hann var einnig efstur í fjölþrautinni hjá strákunum þar sem hann endaði í 10. sæti. Á mótinu keppa auk þeirra lið frá Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Færeyjum, Finnlandi, Skotlandi, N-Írlandi og Írlandi. Árangur stúlknanna er mjög eftirtektarverður þar sem þær fara upp um tvö sæti á milli móta en þær höfnuðu í 4. sæti á sama móti í fyrra. Árangur keppendanna sem kepptu í úrslitum: Sif Pálsdóttir varð í þriðja sæti á slá með 7,40, fjóðra sæti á gólfi með 7,475 og sjöunda á tvíslá með 6,7 stig. Kristjana Sæunn varð einnig í öðru sæti á slá með 7,6 stig og í sjötta sæti á tvíslá með 7,05 stig. Harpa Snædís Hauksdóttir varð í sjöunda sæti á stökki með 7,95 stig. Gunnar Sigurðsson varð í sjötta sæti á stökki með 8,0 stig. Róbert Kristmannsson hafnaði í sjöunda sæti á bogahesti með 7,75 stig í einkunn. Tveir keppendur fóru á mótið en gátu ekki keppt, annars vegar Hera Jóhannesdóttir vegna veikinda og hins vegar Jónas Valgeirsson vegna meiðsla í upphafi móts. Rúnar Alexandersson keppti ekki á mótinu. Kristjana Sæunn hefur slegið í gegn að undanförnu en á dögunum vann hún til þriggja gullverðlauna á alþjóðlegu fimleikamóti í Svíþjóð og það er ljóst að íslenskar fimleikastelpur eru farnar að sækja í sig veðrið á erlendri grundu.
Íþróttir Mest lesið Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Körfubolti Biðin eftir Meistaravöllum styttist um einn dag Fótbolti Bradley Beal til Clippers Körfubolti Eyjakonur gjörsigruðu Gróttu Fótbolti Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Arnar Grétarsson tekinn við Fylki Fótbolti Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Sport Grænt ljós á golfmótið þrátt fyrir gos Golf Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Fleiri fréttir Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Biðin eftir Meistaravöllum styttist um einn dag Bradley Beal til Clippers Eyjakonur gjörsigruðu Gróttu Bellingham í aðgerð á öxl og missir af næstu landsleikjum Arnar Grétarsson tekinn við Fylki Grænt ljós á golfmótið þrátt fyrir gos Ítalía í undanúrslit í fyrsta sinn síðan 1997 Þúsund hjólareiðakappar þeysa um hálendið um helgina Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona „Þetta var bara byrjunin“ Hetjudáðir gegn Íslandi tryggðu henni sæti í byrjunarliðinu í kvöld Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Íslensku strákarnir töpuðu stórt í sextán liða úrslitunum Liverpool reynir líka við Ekitike Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Sjáðu mörkin úr geggjuðum Blikasigri Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Aukinn áhugi á EM þrátt fyrir samkeppni við FIFA Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Steven Gerrard orðinn afi Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sjá meira