Ægir bikarmeistari í sundi 21. nóvember 2004 00:01
Ægir vann glæsilegan sigur í bikarkeppni Sundsambands Íslands sem fram fór í síðasta sinn í Sundhöllinni í Reykjavík. Ægismenn kvöddu Sundhöllina með því að setja félagsmet, náðu í 29.314 stig og unnu í kjölfarið yfirburðasigur í bæði karla- og kvennaflokki. Bikarmeistarar síðustu tveggja ára, ÍRB, enduðu í öðru sæti, 2.408 stigum á eftir Ægi, og SH varð síðan í þriðja sæti með 26.398 stig. Breiðablik fellur í 2. deild en í staðinn tryggði Sundfélagið Óðinn frá Akureyri sér sæti í 1. deildinni. Bikarkeppni Sundsambands Íslands hefur farið fram í Sundhöllinni síðan 1968 eða í 36 ár en á næsta ári mun vera keppt í nýju glæsilegu innilauginni í Laugardal. "Við erum bara með breiðari hóp en hin liðin.Í fyrra vorum við ekki stemmd fyrir mótið, bæði þreytt og pirruð, en núna vorum við öll tilbúin í slagin," sagði Jakob Jóhann Sveinsson, fyrirliði Ægis. "Við vorum miklu léttari í undirbúningnum fyrir mótið í ár en undanfarin tvö ár," sagði Jakob, sem var einn fárra í liðinu sem var með fyrir þremur árum þegar Ægir vann síðast. "Árið 2001 vorum við meistarar en árið eftir misstum við 9 eða 10 sundmenn úr því liði og við þurftum að byggja aftur upp lið sem er að koma upp núna. Við erum ekki nema þrjú eða fjögur eftir úr því liði. Við unnum fyrsta bikarmeistaratitilinn í Sundhöllinni og vinnum einnig þann síðasta og það er einstakt," sagði Jakob Jóhann. Stelpurnar í Ægi unnu stigakeppnina með 1.397 stiga mun og þær settu þrjú Íslandsmet á mótinu. Anja Ríkey Jakobsdóttir úr Ægi bætti eigið met í 100 m baksundi og synti á 1:02,94 en gamla metið hennar var 1:03,10. Þá setti kvennasveit Ægis Íslandsmet í bæði 4x100 metra fjórsundi og 4x100 metra skriðsundi. Aníta Ýr er ein af þeim sem gengu til liðs við Ægi í haust og hún tók þátt í öllum þremur metunum "Þetta var rosalega gaman og við erum geðveikt ánægð," sagði Aníta Ýr. "Við ætluðum okkur að vinna þetta og rústa þessu bara. Það eru allir í toppformi, þó að við séum með mjög ungt lið eru allir að skila sínu og við erum svo góð sem ein liðsheild," sagði Aníta Ýr og brosti út að eyrum enda ekki í hverri bikarkeppni sem sundmaður nær að setja þrjú Íslandsmet um sömu helgi.
Íþróttir Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Uppgjör: FH - KA 5-0 | FH pakkaði KA saman Íslenski boltinn Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Enski boltinn „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Fleiri fréttir Fjögur lið sýnt LeBron áhuga NFL goðsögn féll frá um helgina Leikmannasamtökin fengu ekki að mæta á fund um velferð leikmanna Chelsea pakkaði PSG saman Heimir: „Svo höfum við skitið í deigið“ Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Sævar Atli skoraði er Brann vann toppslaginn Sinner fagnaði sigri á Wimbledon Leik lokið: England - Wales 6-1 | England flaug áfram Leik lokið: Frakkland - Holland 5-2 | Frakkar áfram með fullt hús Björn Daníel: Vonandi fæ ég tvo Múmínbolla Marcus Rashford neitar tilboði frá Sádí-Arabíu Fertugur Cazorla er hvergi nærri hættur Uppgjör: FH - KA 5-0 | FH pakkaði KA saman Endurkoman í þriðja leikhluta ekki nóg fyrir Ísland á U20 EuroBasket Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Lið Arons Einars fær liðsstyrk úr ensku úrvalsdeildinni Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Messi slær enn eitt metið Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Dagskráin í dag: KA fer í Hafnarfjörðinn og golfið heldur áfram Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Konate gæti farið frítt frá Liverpool Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Hákon skoraði tvö í vináttuleik Sjá meira