Innlent

Setur stöðugleikann í hættu

Nýir kjarasamningar grunnskólakennara urðu í dag tilefni harðra umræðna á Alþingi. Einar Oddur Kristjánsson Sjálfsstæðisflokki, sem er varaformaður Fjárlaganefndar, fór mikinn í ræðustól og gagnrýndi launanefnd sveitarfélaga. Hann sagði þessa samninga setja allt jafnvægi í efnahagsmálum úr skorðum þar sem kennarar fái meiri hækkun en aðrir á hinum almenna vinnumarkaði. Þingmenn stjórnarandstöðu andmæltu Einari harðlega og sögðu út í hött að láta sem ríkisstjórnin bæri enga ábyrgð á þessarri stöðu. Einar Oddur sagðist þá tala sem þingmaður, á endanum skipti engu hver bæri ábyrgð á ástandinu, því áhrifin yrðu alltaf þau sömu. Grunnskólakennarar sömdu sem kunnugt er við launanefnd sveitarfélaga í gær og felur samningurinn eftir því sem næst verður komist í sér 25 prósenta launahækkun á samningstímanum, til maímánaðar 2008. Sveitarstjórnarmenn tala um kostnaðarauka upp á um 30%. Samninganefnd kennara mælir með að félagsmenn samþykki samninginn en niðurstaða mun liggja fyrir í síðasta lagi 6. desember.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×