Mun reyna á forsendur annarra 18. nóvember 2004 00:01
Sveitarstjórnarmenn segja að kostnaðarauki vegna nýrra samninga við kennara nemi hátt í þrjátíu prósent fyrir sveitarfélögin og formaður Starfsgreinasambandsins segir að þeir muni reyna á samningsforsendur allra á hinum almenna vinnumarkaði, frá A til Ö. Þannig er talið að kostnaðarauki Reykjavíkurborgar nemi umþaðbil einum milljarði króna á ári. Laun kennara hækka um 25 prósent á samningstímanum, sem er fram í mái, árið 2008. Þeir fá 130 þúsund króna eingreiðslu strax og 75 þúsund króna eingreiðslu næsta sumar. launin hækka strax um 5,5 prósent, afturvirkt til fyrsta október, um þrjú prósent um áramót, tvö og hálft prósent árið 2006, um 2,25% í ársbyrjun 2007 og um sömu tölu í uppahfi árs 2008. Þá fá þeir tveggja prósenta viðbótarlífeyrisgreiðslur frá vinnuveitendum og tæplega 49 þúsund króna persónuuppbót, eða annaruppbót, í lok hverrar skólaannar. Kennsluskylda kennara verður lækkuð um eina klukkustund á viku á næsta ári og um aðra klukkusutnd á þarnæsta ári og verða þær þá komnar niður í 26 stundir á viku. Kennarar eiga á móti að nota tímann til undirbúnings. Þótt niðurstaðan sé í mörgum tilvikum svipuð sáttaatillögu Ríkissáttasemjara, sem kennarar kolfelldu, leggja samningamenn kennara til við kennara að tillagan verði samþykkt. Bæði hafi ýmsir annmarkar verið sniðnir af tilllögunni og með þessu móti þurfi ekki að sæta niðurstöðu kjaradóms, sem fengi vissar forsendur fyrirfram. Nýi samningurinn, sem undirritaður var hjá ríkissáttasemjara í gær, verður nú borinn undir atkvæði og sjötta desember á að liggja fyrir hvort hann verður samþykktur, eða felldur, en verði hann felldur, hefst verkfall væntanlega á ný. Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir samninginn hafa þau áhrif að það reyni á endurskoðunarákvæði sambandsins í haust. Hann segir tóninn gefinn um það hvernig haldið verði á samningum við opinbera starfsmenn. Kristján segir samninga kennara langt umfram það sem gangi og gerist og því muni hans félagsmenn líklega endurskoða sínar samningsforsendur.
Fréttir Innlent Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Erlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Fleiri fréttir Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“