Svaf yfir sig en skoraði 33 stig 13. október 2005 14:56
Portland Trail Blazers var í heimsókn í Toronto og atti kappi við Raptors í NBA-deildinni í gær. Leikmenn Blazers máttu prísa sig sæla að mæta fullmannaðir til leiks því að framherjinn Zach Randolph svaf yfir sig og missti af flugi liðsins til Toronto. Má kappinn búast við sekt vegna þessa en hann dó ekki ráðalaus og fór á eigin vegum yfir landamærin. Blazers byrjaði leikinn betur en Raptors var þó aldrei skammt undan og náði yfirhöndinni í öðrum fjórðungi sem liðið vann, 31-18. Raptors lék vel á þessum kafla og náði mest 12 stiga forystu. Staðan í hálfleik var 51-42, heimamönnum í vil. Randolph og félagar í Blazers neituðu að gefast upp og söxuðu jafnt og þétt á forskot Raptors. Aðeins eitt stig skildi liðin að þegar fjórar sekúndur voru til leiksloka. Þá tók Vince Carter til sinna ráða og skoraði fjögur af síðustu fimm stigum Raptors meðan að leikmönnum Portland voru mislagðar hendur og Toronto stóð uppi sem sigurvegari, 101-97. Carter var stigahæstur heimamanna með 25 stig en svefnpurrkan Zach Randolph fór fyrir Blazers með 33 stig og 15 fráköst.
Íþróttir Mest lesið Segir Eið Smára ekki fá það hrós sem hann á skilið Sport Þjálfari tilbúinn að hætta og tyrkneska þjóðin beðin afsökunar Fótbolti Forráðamenn PSG ósáttir við læknateymi landsliðsins Fótbolti Íbúð landsliðsmanns Úkraínu í rúst eftir sprengjuárás Rússa Fótbolti Áhorfandi sló leikmann og missti af ótrúlegri endurkomu Sport Onana græðir á skiptunum til Tyrklands Fótbolti „Maður er í þessu fyrir svona leiki“ Fótbolti Doncic náði allskonar tölfræðiáföngum í kvöld Sport „Tottenham Hotspur er ekki til sölu“ Enski boltinn „Ætlum að keyra inn í þetta“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu FHL sækja stig gegn Þrótti Tíu mánaða bann fyrir að taka lyf við hárlosi Onana græðir á skiptunum til Tyrklands Þjálfari tilbúinn að hætta og tyrkneska þjóðin beðin afsökunar „Ætlum að keyra inn í þetta“ „Tottenham Hotspur er ekki til sölu“ Áhorfandi sló leikmann og missti af ótrúlegri endurkomu Alcaraz tekur toppsætið af Sinner eftir sigur á Opna bandaríska „Maður er í þessu fyrir svona leiki“ Segir Eið Smára ekki fá það hrós sem hann á skilið Dagskráin í dag: Íslenska U21 landsliðið mætir Eistum Íbúð landsliðsmanns Úkraínu í rúst eftir sprengjuárás Rússa Forráðamenn PSG ósáttir við læknateymi landsliðsins Doncic náði allskonar tölfræðiáföngum í kvöld Víkingar á fleygiferð eftir EM pásuna Spánverjar og Belgar skoruðu sex Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Donni og félagar örugglega áfram í Evrópudeildinni Onana samþykkir skiptin til Tyrklands „Held að þetta séu auðveldustu leikirnir sem þú spilar“ Depay orðinn markahæstur í sögu Hollands Nýliðar KA/Þórs byrja með sigri Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Andrea tók sjötta sætið Uppgjörið: Þróttur - FHL 2-2 | Jafnt í Laugardalnum Langþráð hjá Melsungen Piastri sagt að hleypa Norris fram úr en Verstappen vann Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Ingibjörg fékk rautt í fyrsta leiknum með Freiburg Mega ekki sýna neikvæð viðbrögð í garð Trumps Sjá meira