Sport

Haas efstur eftir tvo hringi

Hinn fimmtugi kylfingur Jay Haas er efstur eftir tvo hringi á Meistaramóti kylfinga á Atlanta þar sem 30 tekjuhæstur kylfingarnir á PGA mótaröðinni berjast á lokamóti ársins. Haas er á sjö höggum undir pari. Kanadamaðuirnn Stephen Ames er annar á fimm höggum undir pari en Tiger Woods lék allra best, hann fór annan hringinn á 64 höggum og er á fjórum höggum undir pari ásamt Retief Goosen. Stigahæsti kylfingur heims, Vijay Sing, lék hringinn á 73 höggum og hann er átta höggum á eftir Haas. Bein útsending frá þriðja hring Meistaramótsins hefst á Sýn klukkan 16.30 í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×