FRÍ uggandi yfir Laugardalsvelli 5. nóvember 2004 00:01
Formaður Frjálsíþróttasambands Íslands er uggandi yfir því að í framtíðarskipulagi Laugardalsvallar er ekki gert ráð fyrir aðstöðu til frjálsíþróttaiðkunar. Ekkert samráð hefur verið haft við sambandið vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga. Fyrir liggur að milljarður verður settur í að stórbæta aðstöðu á Laugardalsvelli en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort völlurinn verður áfram ætlaður hvoru, tveggja fótbolta og frjálsíþróttum. Það liggur þó fyrir að þrengt verður að frjálsíþróttaaðstöðunni strax í fyrsta áfanga breytinganna. Jónas Elíasson, formaður Frjálsíþróttasambands Íslands, segir sambandið hafa talsverðar áhyggjur af þessu því fram hafi komið hjá formanni KSÍ að þetta sé aðeins fyrsti áfangi. Hann vill þess vegna að KSÍ leggi sínar hugmyndir á borðið. Jónas segir Laugardalsvöllinn eina frjálsíþróttavöllinn hér á landi sem uppfylli alþjóðlegar kröfur. Knattspyrnumenn hafa bent á að það myndi til dæmis stórbæta útsýni úr stúku ef hlaupahringurinn hyrfi, en sá munaður gæti reynst dýrkeyptur. Áætlað er að það myndi kosta vel á annan milljarð króna að koma upp viðlíka frjálsíþróttaaðstöðu annars staðar. Þá veltir Jónas því upp hvort ekki væri skynsamlegra að Knattspyrnusambandið kæmi sér upp öðrum velli, eingöngu fyrir fótbolta, og að Laugardalsvöllur verði áfram þjóðarleikvangur fyrir frjálsíþróttir og knattspyrnu. Hann bendir líka á að í Reykjavík séu 30 knattspyrnuvellir en aðeins einn frjálsíþróttavöllur.
Innlent Íþróttir Mest lesið Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Í beinni: Mikið í húfi í lokaumferðinni Enski boltinn Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Íslenski boltinn Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Enski boltinn Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Fótbolti Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Versta byrjun í sögu FH Íslenski boltinn Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Orri á skotskónum Fótbolti Fleiri fréttir Bruno bætti metið eða hvað? Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Í beinni: Mikið í húfi í lokaumferðinni Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Dagskráin í dag: Lokaumferð enska boltans Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Kane með þrennu í úrslitaleik Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Sjá meira