Innlent

Skemmdir kannaðar

Kafarar hafa kannað skemmdirnar sem urðu á bryggjunni í Neskaupstað á sunnudag þegar Baldvin Þorsteinsson EA sigldi á bryggjukantinn. Erfitt reyndist að meta þær vegna lélegs skyggnis. Sérfræðingur frá Siglingamálastofnun er farinn austur til að meta tjónið. Peran á skipinu fór í gegnum stálþil og braut bryggjukantinn. Engar skemmdir urðu hins vegar á skipinu. Óhappið má rekja til mannlegra mistaka. Gísli S. Gíslason, hafnarstjóri í Fjarðarbyggð, hefur ekki lagt mat á tjónið. Heldur ekki sérfræðingar sem Samherji, útgerðarfélag skipsins, fékk til að meta tjónið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×