Sálfræðingar segja velferð í hættu 26. október 2004 00:01 MYND/Vísir
Fulltrúar deilenda í kennaradeilunni hafa verið boðaðir til viðræðna við ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag og samninganefndirnar hafa svo verið boðaðar til fundar í framhaldinu. Svartsýni er í búðum beggja. Félag sálfræðinga segir velferð barna í hættu. Samninganefnd grunnskólakennara kom saman í karphúsinu i morgun til að ráða ráðum sínum fyrir fundinn í dag. Þar er fólk ekki bjartsýnt á að fundurinn í dag skili miklu enda hafi formaður launanefndar sveitarfélagana sagt eftir fundinn í stjórnaráðinu í gær að þeir væru ekki með neitt nýtt í farteskinu. Kostirnir í stöðunni eru ekki margir. Að vísa deilunni í gerðardóm hefur verið útilokað og stjórnvöld segja lagasetningu ekki inni í myndinni. Sáttasemjari á enn það tromp í erminni að leggja fram miðlunartillögu en samningamenn kennara sögðu við fréttastofu í morgun að svo mikið bæri á milli að það yrði erfitt fyrir sáttasemjara að móta slíka tillögu. Fljótlegasta lausnin væri fyrir sveitarfélögin að setja meiri peninga í málið. Það myndi leysa deiluna. Miðlunartillaga felur í sér að farið er framhjá samninganefndunum og tillagan borin undir atkvæði félagsmanna en slikt er þó aldrei gert án samráðs við samninganefndirnar. Samtökin heimili og skóli standa fyrir mótmælum á austurvelli klukkan fjögur á morgun og hvetja þau foreldra til að taka börnin með sér; þau séu saklausir þolendur í deilunni. Á auglýsingu fyrir mótmælin skrifar Egill sem er sex ára: mig langar í skóla en hann á að baki sautján daga skólagöngu og tuttugu og sjö daga verkfall. Félag sálfræðinga við skóla lýsir í ályktun áhyggjum af þeirri stöðu barna sem skapast af langvarandi verkfalli grunnskólakennara. Áhrif þess að rjúfa skólasókn og námsástundun nemenda eru margvísleg og varhugaverð. Velferð margra þeirra gæti verið hætta búin. Sálfræðingar við skóla vilja jafnframt óska þess að mikilvægt starf kennara í þágu barna verði metið að verðleikum eftir því sem kostur er.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira