Fundur á morgun 25. október 2004 00:01
Ríkissáttasemjari hefur boðað samningafund í kennaradeilunni á morgun, eftir fundahöld með forsætisráðherra í dag. Áður stóð ekki til að halda fund fyrr en eftir tíu daga. Lög á deiluna eru ekki í bígerð, og ólíklegt að gripið verði til þess að setja málið í gerðardóm. Sveitarfélögin segja að síðasta tilboð standi enn. Þegar slitnaði upp úr viðræðum síðastliðinn fimmtudag stóð ekki til að boða fund fyrr en eftir tvær vikur. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra kallaði kennara og fulltrúa sveitarfélaganna á fund sinn, menntamálaráðherra og fjármálaráðherra í dag. Halldór segir ekki hafa verið um samningafund að ræða í dag, en fundurinn hafi eigi að síður verið mjög gagnlegur. Deilan sé augljóslega í miklum hnút, en það sé hins vegar allsendis óverjandi að halda ekki fund næstu tvær vikurnar. Fundahöldin í dag hafa þannig fyrst og fremst komið því til leiðar að menn setjast að samningaborði á morgun, í stað þess að bíða í tíu daga í viðbót eins og áður hafði verið boðað. En hvorugur deilenda virðist ætla að leggja fram nýtt útspil. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins segir að það séu röng skilaboð að menn sitji langtímum saman í Karphúsinu án þess að neitt sé að gerast, enda gefi það að vissu leyti falskar vonir. Þá kom fram á fundinum að lagasetning á verkfallið væri ekki í bígerð. Þeirri hugmynd hefur verið haldið á lofti að málið verði einfaldega sett í gerðardóm sem úrskurði um kaup og kjör kennara. Sú hugmynd virðist út af borðinu, þó kennarar hafi ekki tekið neikvætt í hana. Halldór Ásgrímsson segir að ef menn geti á annað borð komið sér saman um forsendur gerðardóms, geti þeir allt eins náð samningum. Ríkissáttasemjari var boðaður á fund ráðherranna með stuttum fyrirvara. Hann hefur þegar lagt fram tillögu til lausnar, sem hafði hefði falið í sér um 25 prósenta útgjaldaauka fyrir sveitarfélögin eða ríflega 15 prósenta launahækkun fyrir velflesta kennara. Sveitarfélögin samþykktu, en kennarar höfnuðu. Gunnar R. Sigurbjörnsson, formaður launanefndar sveitafélaganna, segir tillögu sáttasemjara enn á borðinu og svar sveitarfélaganna liggi fyrir og þau séu hvenær sem er tilbúin til þess að ræða hlutina áfram. Það þýði þó ekki endilega að sveitarfélögin séu tilbúin að ganga enn lengra, en hins vegar liggi fyrir að þau hafi samþykkt tillögu sáttasemjara.
Fréttir Innlent Mest lesið Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Sjá meira