Bólusetning virkar bara á 25% 25. október 2004 00:01
Bólusetning gegn flensu virkar einungis á einn af hverjum fjórum sem láta bólusetja sig, samkvæmt nýrri viðamikilli rannsókn. Ítalskur læknir sem stóð að henni segir það ekki góða fjárfestingu fyrir fyrirtæki að bólusetja alla starfsmenn sína eða að stuðla að því að bólusetja stóran hluta þjóðar. Þessi rannsókn á áhrifum bólusetningar gegn flensu hófst fyrir sjö árum. Alls hafa tæplega 60 þúsund manns verið skoðaðir í rannsókninni, og eru niðurstöður hennar að áhrif bólusetningar séu takmörkuð. Vittorio DeMicheli, ítalskur læknir, segir að úr hundrað manna hópi sem fái bólusetningu við flensu, muni aðeins 25 sleppa við flensuna. 75% fái flensuna hvort sem bólusett sé eður ei. Niðurstöður þessarar rannsóknar hafa vakið mikla athygli annars staðar á Norðurlöndum á síðustu dögum. DeMicheli segir eingöngu sé ástæða til að mæla með bólusetningu á fólki sem sé í áhættuhópi, eins og til að mynda eldri borgarar. Hins vegar sé alger óþarfi að stefna að allsherjar bólusetningum eins og nú sjáist vísbendingar um. Á heimasíðu Landlæknis kemur til dæmis fram að í fyrra hafi um 60.000 Íslendingar verið bólusettir. DeMicheli segir ekkert réttlæta að fyrirtæki bólusetji alla starfsmenn sína, eða að fólk á besta aldri láti yfirhöfuð bólusetja sig, kostnaðurinn sé allt of mikill miðað við takmarkaðan árangur, og hann bendir ennfremur á að mjög lítill hluti samfélagsins fær flensu núorðið, eða í mesta lagi um fimm prósent þjóðarinnar. DeMicheli segir það aðra ástæðu fyrir því að ekki sé rétt að mæla með bólusetningu.
Fréttir Innlent Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Innlent Fleiri fréttir Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Um 36 prósent getur ekki horft á mynd án þess að fara í símann Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Sjá meira