Miðaverð með því hæsta 24. október 2004 00:01
Svíþjóð og Ísland eru í sérflokki hvað varðar miðaverð á landsleiki liðanna í áttunda riðli undankeppni heimsmeistarakeppninnar sem fram fer í Þýskalandi árið 2006. Er um þrefalt dýrara að kaupa sér miða á besta stað á landsleik Íslands, sem er í næstneðsta sæti, og kaupa miða á heimaleik Möltu, neðsta liðsins í riðlinum, sem þó hefur sama stigafjölda og Ísland. Umræðan um hátt miðaverð á knattspyrnuleiki fer vaxandi hér á landi sem erlendis. Þykir England vera í sérflokki hvað þetta varðar, hvort sem um er að ræða miða á leiki félagsliða eða hjá landsliðinu. Hefur enska samkeppnisstofnunin talið málið það alvarlegt að rannsókn stendur yfir á ástæðum þess að miðaverð í Englandi er í hróplegu ósamræmi við miðaverð annars staðar í Evrópu. Gildir einu hvort litið er til Spánar, Þýskalands, Ítalíu eða Frakklands. Sé hugur til að skreppa á góðan fótboltaleik þarf vart að gera ráð fyrir að eyða mikið meira en tvö þúsund krónum fyrir sæti á ágætum stað. Eðlilega er miðaverðið breytilegt miðað við mikilvægi hvers leiks fyrir sig en það virðist ekki vera raunin í Englandi þar sem miðaverð á leiki í úrvalsdeild fer sjaldan undir þrjú til fjögur þúsund krónur og er oft mun hærra en það. Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands Íslands, vill ekki meina að miðar á leiki íslenska landsliðsins séu dýrir en viðurkennir engu að síður þörfina á ódýrari sætum á Laugardalsvellinum. Ráðgert er að miðaverð í þær nýju stúkur sem til stendur að reisa verði ekki hærra en 1.500 krónur. "Þar er kannski mest verið að horfa til þeirra fjölskyldna sem áhuga hafa á að eyða stund saman. Eins og staðan er í dag er dýrt að fara með fjölskylduna á völlinn og því horfum við til að breyta með þeirri uppbyggingu sem vonandi fer að hefjast von bráðar. Hins vegar er miklu dýrara að fara á völlinn í Englandi eða í Skandinavíu en hér og ekki hægt að bera miðaverð hér saman við miðaverð á Möltu. Þá verður að líta til þess hvað kostar að lifa í þessum löndum líka." Samanburður við England og aðrar Norðurlandaþjóðir er þó að margra mati ekki sanngjarn heldur. Talsverður styrkleikamunur er á Íslandi og þeim þjóðum öllum samkvæmt styrkleikalista FIFA. Að Færeyjum undanskildum eru Finnar næsta norræna þjóðin fyrir ofan Ísland, í 45. sæti, Norðmenn í 37. sæti, Svíar í 22. sæti og Danir í því fimmtánda. Landslið Englands er 81 sæti fyrir ofan Ísland í því sjöunda. Af þeim þjóðum í Evrópu sem eru í nánd við Ísland á viðkomandi lista er miðaverð á leiki Albaníu margfalt lægra en hér gerist og í raun aðeins Austurríki, þremur sætum fyrir ofan Ísland, sem kemst með tærnar þar sem Ísland hefur hælanna hvað varðar miðaverð á landsleiki. Aðspurður um hvort þeir sem sækja heimaleiki íslenska liðsins séu að fá sitt fyrir peningana segir Eggert að það verði hver og einn að gera upp við sig sjálfur. "Það er nú svo að margir koma á landsleiki Íslands til að fylgjast með heimsþekktum stjörnum þeirra þjóða sem sækja okkur heim. Ég vil meina að margir fái mikið fyrir peningana þó að íslenska landsliðið sé ekki að sýna sitt besta."
Íþróttir Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Fótbolti Lést uppi á hótelherbergi í draumaferð sinni á HM Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Maður dagsins: Fyrirliði Orra úr aðhlátursefni í hetju Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Kóngafólkið dansaði í klefa Curacao Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Lést uppi á hótelherbergi í draumaferð sinni á HM Kristín setti heimsmet og vann brons á HM: „Stolt af sjálfri mér“ Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Bauluðu á verðandi US Open meistara Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Dagskráin í dag: KRÍA og Besta deild kvenna „Loksins næ ég að skora þrennu“ „Vorum litlir í okkur á stóra sviðinu“ „Mikil vinna sem liggur að baki svona sigri“ Wyndham Clark er sigurvegari U.S. Open Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Stál í stál í toppslag á Meistaravöllum Efstu lið lentu í kröppum dansi en sigldu heim sigrum Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Uppgjör og viðtöl: Valur – Keflavík 1-1 | Tvö lið sem lengir eftir sigri Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Dean Martin kveður ÍA og tekur við liði í Óman Markaveisla og varamenn gerðu sig gildandi í Breiðholti Belgar fóru illa að ráði sínu gegn Íran Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn