Særðir eftir sprengjuárás 23. október 2004 00:01
Tveir Íslendingar liggja á sjúkrahúsi eftir sprengjuárás í miðborg Kabúl í gær. "Við teljum að maður hafi hent til okkar fjórum handsprengjum og þar af hafi þrjár sprungið. Þetta gerðist samt allt mjög hratt og erfitt að segja nákvæmlega til um hvað gerðist. Ein tilgátan er sú að maðurinn hafi verið með sprengjurnar á sér," segir Hallgrímur Sigurðsson, starfsmaður íslensku friðargæslunnar og yfirmaður flugvallarins í Kabúl. Þrír Íslendinganna slösuðust en enginn þeirra alvarlega. Sverrir Haukur Grönli fékk minniháttar skrámur en þeir Stefán Gunnarsson og Steinar Örn Magnússon fengu sprengjubrot í útlimi og eru á þýsku hersjúkrahúsi í úthverfi Kabúl. Að sögn Hallgríms er líðan Stefáns og Steinars ágæt. "Þeim líður bara vel. Það er samt ómögulegt að segja til um hvenær þeir geta hafið störf á ný." Aðspurður segir hann að komið hafi til tals að senda mennina heim. "Þeir eru bara á spítala og málið verður skoðað betur þegar tækifæri gefst." Aðspurður um tíðni árása í nánasta umhverfi friðargæsluliðsins segir Hallgrímur alltaf eitthvað um árásir sem beinast gegn friðargæsluliðinu í Kabúl. "Það hefur verið frekar lítið um svona árásir undanfarið. Síðasta sjálfsmorðsárásin sem ég man eftir var í byrjun ársins. Þetta er ákveðið áfall og mönnum er brugðið," segir Hallgrímur. "Við erum hins vegar allir undir það búnir að eitthvað slíkt geti gerst. Allir sem eru hér vita að við getum lent í árás, hvort sem er á flugvellinum eða á ferð okkar um Kabúl." Hallgrímur segist sannfærður um að árásinni hafi ekki verið beint gegn Íslendingum sjálfum heldur hafi hún verið gerð til að koma höggi á friðargæsluliðið. "Ákveðnar líkur er hægt að leiða að því að árásinni hafi verið beint gegn friðargæsluliði NATO."
Fréttir Innlent Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Fleiri fréttir Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Sjá meira