Innlent

Ræðumaraþon í Kringlunni

Kvenréttindafélag Íslands efndi til ræðumaraþons í Kringlunni í dag í tilefni af kvennafrídeginum, 24. október, en hann á þrjátíu ára afmæli á næsta ári. Fjöldi kvenna úr öllum starfsgreinum samfélagsins lét ljós sitt skína í ræðustól til að minnast framlags kvenna til samfélagsins og kvennafrídagsins. Margir vegfarendur í verslunarmiðstöðinni stöldruðu við og lögðu við hlustir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×