Íslenski hesturinn sló í gegn 22. október 2004 00:01
Um 60.000 manns sáu og hrifust af íslenska hestinum á stórsýningu og keppni í Bretlandi nýverið, að sögn Jónasar R. Jónssonar umboðsmanns íslenska hestsins. Er þetta í fyrsta sinn sem Íslendingar taka þátt í þessum atburði. Til stendur að fylgja þessari mikilvægu kynningu vel eftir þar í landi. "Þetta er eins konar landsmót þeirra Breta," sagði Jónas. "Þarna fór fram umfangsmikil keppni, auk þess sem þrjú hestakyn voru sýnd sérstaklega. Það voru íslenski hesturinn, lífverðir Bretadrottningar á hestum sínum og Lipizzaneres, hvítu Vínar - hestarnir." Ellefu knapar sýndu tólf íslenska hesta á sýningunum sem, voru sjö talsins í höll sem tekur um 9000 manns í sæti. Hestarnir komu víðs vegar að úr Evrópu. "Aðdragandinn var sá, að einn af stjórnarmeðlimum sýningarinnar hafði séð íslenska hestinn á sýningu í Þýskalandi," sagði Jónas. "Hann hreifst svo af eiginleikum hans þar, að stjórnin spurðist fyrir hjá okkur um hvort við værum til í að koma með hesta og knapa á sýninguna. Við ákváðum að taka þátt og undirbúningur okkar hafði staðið mánuðum saman. Það varð úr og þarna var sýnd munsturreið og allar gangtegundir. Við heilluðum áhorfendur og þeir gripu andann á lofti og klöppuðu með. Þeir nutu til hins ítrasta að horfa á hestana og láta koma sér á óvart. Þeir vissu að hverju þeir gengu með öll önnur hestakyn, en þarna var eitthvað alveg nýtt á ferðinni."
Fréttir Innlent Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Erlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Fleiri fréttir Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sjá meira